fbpx
Laugardagur 28.febrúar 2026
Eyjan

Miðaldaborgin Fez

Egill Helgason
Laugardaginn 11. apríl 2009 10:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við tókum bílaferju frá Spáni yfir til Tangier, hafnarborgarinnar frægu þar sem Miðjarðarhaf og Atlantshaf mætast. Hún var eitt sinn alþjóðlegust borga, þar voru rithöfundarnir Paul Bowles, William Burroughs og málarinn Henri Matisse.

Þaðan ókum við í fimm tíma til hinnar fornu borgar Fez, sem er ein af keisaraborgunum í Marokkó. Þar búa þrjú hundruð þúsund mann í þröngum götum í gamaldags arababorg – medínu – og stunda handverk eins og enn væru miðaldir.

Fez þykir einhver best varðveitta miðaldaborg í heimi, hún er á heimsminjaskrá sem slík – það er eins og maður sé kominn margar aldir aftur í tíma.

Borgin er full af furðulegum og framandi lykt  – og hljóðin –  klerkarnir í ótal moskum byrjuð fyrst að kalla til bæna klukkan fjögur í nótt. Maður fer einu sinni um borgina og er hissa – og kannski dálítið skelkaður – en svo togar þessi heillandi heimur í mann og maður vill fara aftur.

Hér eru tvær myndir af súturunum í Fez. Þetta er heldur óhreinleg iðja sem hefur verið stunduð þarna mann fram af manni í mörg hundruð ár. Lyktin er heldur ekki góð, enda eru alls konar furðuleg efni notuð við sútunina, meðal annars dúfnaskítur og kúahland. Væri líklega ekki hægt að bjóða löndum okkur þetta starf, ekki einu sinni í kreppu.

img_0230.jpg

img_0231.jpg

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt

Björn Jón skrifar: Báknið kjurt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið

Grímur Sæmundsen: Fór á bólakaf í Bláa lónið
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“