

Meðal efnis í Kiljunni í kvöld er umfjöllun um Jóhann Jónsson skáld. Jóhann fæddist á Snæfellsnesi en lést í Leipzig 1932. Hans er einkum minnst fyrir kvæðið Söknuð og fyrir skrif Halldórs Laxness um hann. Þeir voru miklir vinir.
Í þættinum verður meðal annars rætt við Aðalsteinu Sumarliðadóttur frá Ólafsvík. Aðalsteina er á níræðisaldri, en beitti sér fyrir því að reistur yrði minnisvarði um Jóhann í heimabæ sínum.
Greint verður frá tilefningum til þýðingaverðlauna sem verða veitt á degi bókarinnar 23. apríl.
Einnig verður rætt við franska rithöfundinn Marie Darrieussecq. Hún er höfundur leikritsins Sædýrasafnið sem nú er sýnt í Þjóðleikhúsinu, en skáldsögur hennar hafa selst í stórum upplögum víða um heim. Á íslensku hefur komið út eftir hana bókin Gylting.
Darrieussecq er mikill Íslandsvinur og hefur margoft komið hingað.
Páll og Kolbrún eru fremst í þættinum, en Bragi aftarlega í honum.