
Það væri forvitnilegt ef Davíð byði sig fram á Suðurlandi.
Búið er að loka fyrir framboð í prófkjörinu í Reykjavík þannig að þar kemst hann ekki inn.
En Suðurlandið er enn galopið.
Davíð liggur mikið á hjarta, hann var ábyggilega ekki á réttum stað í Seðlabankanum – en er hann búinn með kvótann sinn í pólitík?
Nógu virðist honum a.m.k. vera heitt í hamsi vegna spillingarinnar sem hér hefur grasserað og seinagangsins við að rannsaka hana.