
Steingrímur J. og Skúli Eggert Þórðarsson ríkisskattstjóri ætla að rannsaka skattaskjól.
Það gæti hjálpað í þessari baráttu að almenningsálitið í heiminum hefur snúist öndvert gegn þessari starfsemi, ekki síst í Bandaríkjunum.
Obama hefur haft uppi stór orð um skattaskjólin. Meðal annars sagði hann um banka á Caymaneyjum sem hýsir 12 þúsund bandarísk fyrirtæki að annað hvort sé þetta stærsta bygging í heimi eða mesta skattasvindl í veröldinni.
„There is a building in the Cayman Islands that houses supposedly 12,000 US-based corporations. That’s either the biggest building in the world or the biggest tax scam in the world, and we know which one it is.“
Við á Íslandi þurfum líka að horfa til Lúxemborgar. Eins og kom fram í viðtali við Sigrúnu Davíðsdóttur í Silfri Egils á sunnudag var Lúxemborg þungamiðjan í peningaflutningum Íslendinga. Íslensk stjórnvöld þurfa að gera allt sem þau geta til að fá upplýsingar frá Lúxemborg.
Ég hef haft heimildir fyrir því að í því efni hafi Fjármálaeftirlitið reynst vera furðulega tregt.