
Össur Skarphéðinsson skrifar á blogg sitt að fall þjóðartekna færi okkur aftur til 2005.
Þetta sé nú ekki alvarlegra en svo.
Árið 2005 voru fjárlög samþykkt með 10 milljarða króna afgangi.
Sem var auðvitað alltof lítið; þenslan var þá í hámarki.
Í ár er gert ráð fyrir 150 milljarða króna halla.
Fyrir utan peningana sem þarf að taka frá í vaxtagreiðslur af öllum þeim lánum sem ríkið þarf að taka. Fjórða hver króna sem kemur inn af skattpeningum þessa árs fer í vaxtagjöld.
Á næsta ári er gert ráð fyrir að þurfi að grípa til mjög harkalegs niðurskurðar.
Það er beinlínis gert ráð fyrir því í samkomulaginu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að vondu tíðindunum sé ekki öllum dembt yfir okkur í einu.
Þess má svo geta að í stefnuræðu forsætisráðherra sem flutt var 2. október var Geir Haarde að tala um að hagvöxtur yrði hér meiri en gert hefði verið ráð fyrir.
Þannig að maður tekur eiginlega öllum spám með fyrirvara.