
Þetta er eiginlega átakanlegt.
Kauphöllinn ætlar að fara að nota nýja vísitölu. Svokallaða OMXI6.
Gildi hennar byrjar í 1000.
Lítur náttúrlega miklu betur út í markaðsfréttunum en gamla vísitalan sem var búin að hrynja um 95 prósent niður í 355 stig.
Annars er þetta gott dæmi um hvernig komið er fyrir Kauphöllinni. Eitt aðalfélagið þar til skamms tíma, Exista, er nú virði eins þúsundasta af því sem var þegar gengið var hæst.
Hæst fór gengið í fjörutíu en nú er það fjórir aurar.
Sá sem keypt hefði fyrir þúsundkall á sínum tíma ætti eina krónu í dag.
Kauphöllin og hvernig hlutabréfaverð var blásið upp þar inni er reyndar sérstakt rannsóknarefni.
Hugsanlega má halda því fram að þarna hafi verið mesta verðbréfabóla sögunnar – a.m.k. miðað við fólksfjölda.