fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Eyjan

Meðbyr Frjálslyndra

Egill Helgason
Mánudaginn 19. apríl 2010 07:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einn stjórnmálaskýrandi orðaði það svo: Ef þið viljið endurhlaða breska kerfið þá kjósið þið Frjálslynda demókrata.

Það er stórkostlegt að sjá hvernig Nick Clegg hefur stolið senunni frá David Cameron og Gordon Brown.

Og nú eru stóru flokkarnir farnir að vera áhyggjufullir. Cameron heldur því fram í dag að atkvæði greitt Clegg sé óbeinn stuðningur við Verkamannaflokkinn. Hann talar eins og Clegg sé boðflenna.

En staðreyndin er sú að breskir kjósendur eru farnir að þrá alvöru breytingar – ekki bara hið staðlaða reiptog milli Íhalds og Verkamannaflokks og spunadeilda þessara flokka – svo nú er spurning hvort Frjálslyndir geti nýtt sér meðbyrinn til að vinna sögulegan kosningasigur.

Annars skrifar David Yelland í Guardian að atkvæði greitt Frjálslyndum sé atkvæði gegn Rupert Murdoch og fjölmiðlaveldi hans – og áhrifavaldi hans á stóru flokkana.

Það er ágætis bónus.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Karl Ágúst Úlfsson: 110 þýðingar komnar – best að komast afsíðis

Karl Ágúst Úlfsson: 110 þýðingar komnar – best að komast afsíðis
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Jólatréð í Kokkedal

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Jólatréð í Kokkedal
Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: Verst að tapa orðunum – spurði lækninn hvort hann kæmist ekki á skíði rétt eftir heilaaðgerð

Karl Ágúst Úlfsson: Verst að tapa orðunum – spurði lækninn hvort hann kæmist ekki á skíði rétt eftir heilaaðgerð
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Fellibylur í fingurbjörg – stjórnarandstaðan stígur í feitina og verður sér til minnkunar

Orðið á götunni: Fellibylur í fingurbjörg – stjórnarandstaðan stígur í feitina og verður sér til minnkunar