fbpx
Þriðjudagur 03.júní 2025
Eyjan

Mammon á Sæbraut

Egill Helgason
Þriðjudaginn 31. janúar 2012 12:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hallgrímur Helgason skrifar grein um Vafningsmálið. Í henni eru ýmsar áleitnar spurningar um það sem var á seyði í viðskipta- og efnhagslífinu árið 2008. Jú, greinin er umdeild og það eru ýmsar ástæður fyrir því.

En það var strax farið að hjóla í persónu Hallgríms – hann er kallaður „brjóstmylkingur“ útrásarinnar, hvað sem það þýðir.

Margir auðguðust á útrásartímanum, en Hallgrímur var örugglega ekki í þeim hópi.

Svo er sífellt verið að tala um óséða málverkið eftir hann.

Sagan er þannig að á hámarki útrásarinnar var haldin góðgerðasamkoma á vegum UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna – Roger Moore kom til Íslands af þessu tilefni. Þetta var 1. desember árið 2005.

Samkomuna sótti aðallega efnað fólk, meðal annars útrásarvíkingar, og var eitt skemmtiatriðið uppboð á ýmsum hlutum. Fyrr um daginn höfðu ýmis stórfyrirtæki þess tíma heitið UNICEF háum styrkjum.

Meðal þess sem var boðið upp var málverk eftir Hallgrím – ómálað verk.

Uppboðið fór dálítið úr böndunum, miðað við hvernig svona atburðir fara oftast fram á Íslandi. Málverkið eftir Hallgrím var slegið á 20 milljónir. Það er sagt að á þessari samkomu hafi verið almennt fyllerí. Enginn hafði búist við því að ómálað verk yrði slegið á slíkan pening – og allra síst Hallgrímur.

Þorsteinn sem á þeim tíma var kenndur við Kók keypti verkið – og vegna þess að þetta var góðgerðasamkoma runnu peningarnir til UNICEF en ekki í vasa Hallgríms.

Hallgrímur málaði verkið síðar og það leit svona út, þetta er Mammon sjálfur að aka eftir Sæbrautinni. Óneitanlega nokkuð glúrin mynd.

Eins og ég segi eru áleitnar spurningar í grein Hallgríms. Hann er líka í viðtali við Smuguna þar sem hann segir að hann hafi ákveðið að skrifa greinina þegar nokkrir úr „mínu liði“ fóru að kjósa með Bjarna Benediktssyni.

Þar er Hallgrímur kominn út á dálítið hálan ís – það fer eiginlega best á því að listamenn, sem og fjölmiðlamenn, séu í engu liði.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen

Kristjana ráðin forstöðumaður söludeildar TVG-Zimsen
Eyjan
Fyrir 1 viku

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“

Trump með ótrúlega staðhæfingu um Biden – „Þetta eru föðurlandssvik á hæsta stigi!“