fbpx
Laugardagur 28.júní 2025
Eyjan

Lélegt úrval, lítil einkaneysla – netið þurrkar út landamæri

Egill Helgason
Laugardaginn 16. nóvember 2013 21:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég fór í Smáralind í dag. Þurfti að eyða þar þremur kortérum. Gekk inn í nokkrar fata- og skóbúðir. Bara til að skoða.

Það sem sló mig var hvað úrvalið var lítið. Ég hugsaði, ætli sé ekki betra úrval í Albaníu? Fór á netið þegar ég kom heim og fann þessa vefsíðu – jú, úrvalið er líklega betra í Tirana.

Við erum auðvitað fámenn þjóð, en það er ekki eina skýringin. Stefán Ólafsson segir að einkaneysla á Íslandi sé of lítil, hún hefur ekki náð sér eftir hrun. Launin eru einfaldlega of lág.

Þeir sem hafa efni á fara til útlanda og versla, ekki síst til Bandaríkjanna þar sem úrvalið er meira og verðið betra. Svo eru þeir sem nota vefinn, mér er sagt að netverslanir eins og Aliexpress séu mjög vinsælar. Samtök verslunar og þjónustu vilja taka harðar á þeim innflutningi þar sem fölsuð merkjavara er áerandi.

Það er reyndar spurning hvernig alþjóðavæðingin fer með ýmsar greinar sem hafa verið stundaðar hérna. Verslunin hérna á Íslandi getur illa mætt samkeppni eins og sagt er frá hér að ofan. En við getum líka skoðað sjónvarpsmarkaðinn. Útlenskar efnisveitur hafa orðið mjög vinsælar á stuttum tíma, notendur þeirra horfa þeim mun minna á íslenskt sjónvarp. Efnið er auðvitað ótextað, við því er ekkert hægt að gera. Svona efnisveitur eiga örugglega eftir að stækka í nánustu framtíð – enn sem komið er svindla Íslendingar sér hálfpartinn þangað inn, en það mun breytast.

Og bókaútgáfan – hvað verður um hana þegar æ fleiri venjast á að panta bækur beint í gegnum erlendar netverslanir? Geta íslenskar netbækur keppt? Hvað þá með þýðingar – sjá menn þá einhvern tilgang í að þýða bækur?

Svona þurrkar netið út gömul landamæri – og gamlir siðir gætu þurft að breytast með. Um leið gætu atvinnugreinar sem við höfum stundað hér skroppið saman eða lagst af.

images-2

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!

Thomas Möller skrifar: Einföldum lífið!
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki

Sigmundur Ernir skrifar: Kunnum ekki, getum ekki, megum ekki
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt

Þorbjörg Sigríður: Undarlegt að kveinka sér undan því að þurfa að mæta til vinnu – ekkert nýtt að veiðigjöldum sé breytt
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Enn eru fornmenn á ferð