Þróttur Vogum hefur styrkt sig fyrir átökin í 2. deild karla næsta sumar með því að fá Kian Viðarsson og Högni Madsen til félagsins
Kian Viðarsson hefur gengið til liðs við Þrótt Voga. Kian sem verður tvítugur á þessu ári spilaði með Reyni Sandgerði á síðasta tímabili. Kian sem er vinstri bakvörður ólst upp í San Diego í Bandaríkjunum, faðir hans er Íslenskur.
Kian spilaði í háskólaboltanum áður en hann kom til Reynismanna á síðasta tímabili.
Högni Madsen, sem er 32 ára, er frá Færeyjum og lék síðast með Fram í Inkasso-deildinni, þar á undan með B36 frá Þórshöfn. Hann á 8 A-landsleiki fyrir Færeyjar og hafði allan sinn feril leikið í heimalandinu áður en hann fór í Fram. Högni getur bæði spilað miðvörð og miðju.