Greindi frá leiðindum innan veggja skólans á ask.fm
Harmleikur átti sér stað í þegar pólsk stúlka fannst látin í skóla í Cornwall í Bretlandi. Stúlkan hafði kvartað undan því að verða fyrir rasisma í skólanum áður en hún lést.
Lögregla og aðrir viðbragðsaðilar voru kallaðir að skólanum, þar sem stúlkan, Dagmara Przybysz, var úrskurðuð látin á vettvangi. Hún var nýlega orðin fimmtán ára gömul og hafði flutt frá heimalandi sínu, Póllandi til að búa með fjölskyldu sinni í bænum Redruth.
Rannsókn á andláti stúlkunnar stendur yfir, en áður hún lét lífið hafði hún kvartað yfir leiðindum í skólanum á vefsíðunni ask.fm. Aðspurð hvert vandamálið í skólanum væri, svaraði hún: „Rasismi.“ Nú hefur svörunum verið eytt af ask.fm síðu stúlkunnar.
Ættingjar hennar hafa verið látnir vita af málinu, að sögn lögreglunnar. Enginn í skólanum hefur viljað svara spurningum blaðamanna Mail Online, þegar eftir því hefur verið leitað.
Í næstu viku verður haldin minningarathöfn, þar sem öllum sem þekktu hana verður boðið að koma og minnast hennar.