fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Fréttir

Bréfin nálgast vildarvinaverð

Hlutabréf í Símanum hafa lækkað í verði um 22% frá áramótum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. maí 2016 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Árið 2016 verður Símanum erfitt þegar maður horfir til atriða eins og rekstrarhagnaðar og tekna en við sjáum fyrir okkur að fyrirtækið nái sér aftur upp tiltölulega fljótt á þessu ári. Þetta snýst allt um það hversu vel stjórnendunum tekst að snúa rekstrinum við og hvernig fjárfestar taka því,“ segir Ragnar Benediktsson, sérfræðingur hjá IFS Greiningu, um gengi hlutabréfa Símans í Kauphöll Íslands sem hafa frá áramótum fallið í verði um 22%.

Gengi bréfa Símans nam 2,9 krónum á hlut við lokun markaða í gær, mánudag, samanborið við 3,7 krónur á hlut þann 6. janúar síðastliðinn. Verð bréfanna nálgast nú það sem vildarviðskiptavinir Arion banka fengu að kaupa samtals 5% hlut í fjarskiptafyrirtækinu á, 2,8 krónur á hlut, en á enn nokkuð í það sem hópurinn sem samanstóð af stjórnendum félagsins, og fjárfestum þeim tengdum, fékk að kaupa á í ágúst í fyrra. Þegar fyrirtækið var tekið til viðskipta í Kauphöllinni þann 15. október í fyrra var útboðsgengi Símans 3,33 krónur á hlut.

Keyptu á genginu 2,8 og 2,5

Keyptu á genginu 2,8 og 2,5

DV fjallaði þann 15. janúar síðastliðinn um að valinn hópur vildarviðskiptavina Arion banka hefði við opnun markaða þann dag geta hagnast um alls 343 milljónir króna á hlutabréfum í Símanum sem hann keypti af bankanum á lægra verði en almennum fjárfestum bauðst. Gengi hlutabréfa Símans hafði þá hækkað um 23% frá 2,8 króna genginu á hlut sem Arion banki úthlutaði vildarvinunum í september 2015. Bréfin voru með söluhömlum og mátti ekki selja þau fyrr en 15. janúar. Hlutabréf almennra fjárfesta í Símanum höfðu þá hækkað um 3,6% frá skráningu fyrirtækisins í Kauphöll.

Hópur stjórnenda Símans og fjárfestar þeim tengdir keyptu í ágúst í fyrra annan 5% hlut í Símanum af Arion banka á genginu 2,5 krónur á hlut. Þau bréf mega meðlimir hópsins, sem Orri Hauksson, forstjóri Símans, setti saman, ekki selja fyrr en í janúar 2017.

„Við höfum metið Símann á genginu 3,2–3,3 frá því fyrirtækið fór á markað. Við munum meta það aftur í vikunni enda eru núna komnar upplýsingar um minni tekjur en við gerðum ráð fyrir en framlegðarhlutföll eru aftur á móti nokkuð betri en við spáðum fyrir á fyrsta fjórðungi,“ segir Ragnar.

Hörð samkeppni

Síminn kynnti í síðustu viku helstu niðurstöður í rekstri fyrirtækisins á fyrsta ársfjórðungi 2016. Kom þá fram að tekjur þess drógust saman um 251 milljón króna miðað við sama tímabil 2015. Þar hefði meðal annars komið til lakari sala á auglýsingum á Skjá Einum í opinni dagskrá en gert hefði verið ráð fyrir og áskriftartekjur í sjónvarpi. Kostnaður samstæðunnar hafi aukist umtalsvert vegna hins svokallaða SALEK-samkomulags, kjarasamnings ASÍ og Samtaka atvinnulífsins sem tók gildi í byrjun árs. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 1.605 milljónum og dróst saman um 356 milljónir og hagnaðurinn um 482 milljónir króna.

Óvissa vegna málarekstrar

Óvissa vegna málarekstrar

Félagið stendur í málarekstri vegna ýmissa mála sem snúa að túlkunum á fjölmiðla-, fjarskipta og samkeppnislögum. Vodafone á Íslandi hefur stefnt Símanum til greiðslu skaðabóta vegna meints ólægmæts verðþrýstings og nemur stefnufjárhæðin ríflega 900 milljónum króna. Fjarskiptafyrirtækin tvö hafa þar að auki átt í ágreiningi vegna dreifingar á sjónvarpsefni Skjás Eins.

Samkeppniseftirlitið og Póst- og fjarskiptastofnun hafa nú til meðferðar kvartanir Vodafone gegn Símanum en síðarnefnda fyrirtækið vill ekki að samkeppnisaðilinn fái að senda dagskrárefni Skjás Eins í ólínulegri dagskrá.

Í árshlutareikningi Símans fyrir fyrsta ársfjórðung 2016 er einnig komið inn á kröfu Inter, samtaka aðila sem veita internetþjónustu, um skaðabætur að fjárhæð þrír milljarðar króna, sem samtökin telja Símann þurfa að greiða vegna meintra brota á samkeppnislögum. Síminn hafi einnig þurft að taka til varna í máli TSC ehf. gegn fjarskiptafyrirtækinu sem hefur stefnt því til greiðslu rúmlega 100 milljóna króna vegna meintra brota. Síminn hefur hafnað málatilbúnaði Vodafone, Inter og TSC.

„Það er harðnandi og gríðarlega mikil samkeppni á íslenska fjarskiptamarkaðinum. Síminn er núna ekki að selja sjónvarpsáskriftir að Skjá Einum og er að reyna að keyra þetta á auglýsingatekjum. Auglýsingatekjurnar voru mun lakari en fyrirtækið reiknaði með, meðal annars vegna Ófærðar og handboltans á RÚV. Gengi félagsins í Kauphöll mun meðal annars fara eftir því hvernig tekjurnar eiga eftir að þróast og hversu lengi samkeppnin á eftir að vera svona hörð,“ segir Ragnar.

Stöðugildum fækkað

Stöðugildum innan Síma-samstæðunnar fækkaði um nær 80 á fyrsta fjórðungi ársins. Þar af taldi sala á dótturfélögunum Staka og Talenta rúman þriðjung. Í uppgjörstilkynningu fyrirtækisins segir að áskrifendur að gagnvirkri áskriftarþjónustu hjá Símanum séu nú orðnir fleiri en voru áður að áskriftarsjónvarpsstöðinni Skjá Einum og að sjónvarpsvörur fyrirtækisins „fái aukinn kraft á næstu vikum“ vegna sýningarréttar Símans á EM 2016 í knattspyrnu.

Þetta snýst allt um það hversu vel stjórnendunum tekst að snúa rekstrinum við og hvernig fjárfestar taka því.

„Símafélög erlendis hafa verið nokkuð þétt verðlögð á markaði og menn hafa verið að horfa á hvernig þau eru metin. Símafélögin á Íslandi eru mögulega tveimur til fjórum árum eftir í hagræðingaraðgerðum miðað við félög erlendis. Félög erlendis eru með hærri framlegðarhlutföll og núna detta íslensku félögin niður vegna hækkandi launakostnaðar. Það kæmi ekki á óvart ef sú staðreynd að Vodafone má bjóða farsímaþjónustu, internet, sjónvarp og fastlínu, í einum pakka, en Síminn ekki, eigi eftir að hafa áhrif á framhaldið,“ segir Ragnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu

Jóhann hlaut dóm í héraði – Leigði ólöglega brunagildru í Þverholti til búsetu og stofnaði lífum í hættu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar

Ólafur Þ. Harðarson: Stjórnarflokkarnir eru að koma sér upp þægilegum merkimiðum þegar styttist í kosningar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Næsta skref – byltingakenndar breytingar

Næsta skref – byltingakenndar breytingar