fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Júlíus Vífill segir af sér

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 5. apríl 2016 14:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hefur sagt af sér sem borgarfulltrúi. Þetta tilkynnti Júlíus við upphaf borgarstjórnarfundar í dag.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagði að ákvörðun Júlíusar hefði komið honum á óvart og þakkaði honum fyrir samstarfið á liðnum árum.

Þetta kom mér á óvart. Ég vissi ekki af þessu.

„Þetta kom mér á óvart. Ég vissi ekki af þessu. Ég bjóst ekki við þessu. Ég vil þakka Júlíusi fyrir gott samstarf og raunar finnst mér hann stíga hér merkilegt skref. Og sem að getur skipt máli í íslenskri pólitík og íslenskri stjórnmálamenningu sem fordæmi. Eftir stendur það verkefni okkar að klára að skoða þessi mál. Ég tek undir ábendingar hans um hagsmunaskráningu og það er eitthvað sem við þurfum að fara yfir. Við höfum verið að uppfæra þessa skráningu um það bil einu sinni á ári. Það þarf hugsanlega að fylgja því eftir að gera það oftar og svo framvegis. Ég vil ítreka þakkir til Júlíusar Vífils Ingvarssonar,“ sagði Dagur.

„Ég ber mikla virðingu fyrir hans ákvörðun. Ég vona að honum farnist sem best,“ sagði Sóley Tómasdóttir, forseti borgarstjórnar, í viðtali við RÚV.

Nafn Júlíusar Vífils kom upp í tengslum við Panama-skjölin, en hann stofnaði aflandsfélag, Silwood Foundation, í Panama árið 2014. Júlíus sagði að félagið hefði verið stofnað til að halda utan um reikning hans í bankanum Julius Bär í Sviss, eins og Reykjavík Media greindi frá.

Júlíus Vífill hefur setið í borgarstjórn í fjórtán ár en hvergi var getið um félagið í hagsmunaskráningu Júlíusar í borgarstjórn. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í síðustu viku að allt varðandi sjóðinn hefði verið í samræmi við íslensk lög og lúti sömu reglum og sjálfseignarstofnun. Sagðist hann ennfremur ekki hafa fengið greitt úr sjóðnum eða haft úr honum tekjur. Hugmyndin hafi verið að stofna eftirlaunasjóð sem fyrr segir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“