fbpx
Mánudagur 17.nóvember 2025
FókusKynning

Frábært sýrlenskt kebab og dásamleg þjónusta

Kynning

Mandi, Veltusundi 3b

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 2. apríl 2016 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mandi er einstakur staður í hjarta borgarinnar, staðsettur að Veltusundi 3b. Staðurinn er afar vinsæll meðal ungs fólks sem margt sækir sér gott í gogginn þar um nætur. Fyrir utan frábærlega bragðgóða kebab-rétti og hamborgara lætur unga fólkið afskaplega vel af persónulegri, þjónustu, glaðværð og hlýlegri framkomu sem það mætir alltaf hjá starfsfólki staðarins. Að sögn eigendanna er starfsfólk þeirra mjög glaðlynt og lagt er upp úr persónulegri þjónustu og góðum húmor.

Mandi er í eigu hjónanna Hilal, sem er frá Sýrlandi, og Ivonu, sem er pólsk. Kebab-réttir staðarins flokkast undir sýrlenska matargerð en þeir eru með kjúklingi, skelfiski og bolfiski; en síðan eru einnig í boði hamborgarar sem þykja mjög góðir.

Mandi er í senn grillstaður og lítil verslun en ekki er selt áfengi á staðnum. Selt er sælgæti, snakk, gos og helstu matvörur, en mesta aðdráttaraflið, fyrir utan yndislega þjónustuna, hefur maturinn.

Afgreiðslutíminn á Mandi er langur. Virka daga er opið frá kl. níu á morgnana til tvö á nóttunni en um helgar er opið fram til klukkan sex um morguninn. Mest er að gera á staðnum í hádeginu, um kvöldmatarleytið og á nóttunni (um helgar). Vinnandi fólk í nágrenninu fyllir staðinn í hádeginu, en þó ekki síst háskólastúdentar og framhaldsskólanemar. Í kvöldmat koma síðan aðrir fastagestir og unga fólkið sem skemmtir sér í miðbænum um helgar fyllir síðan staðinn um nætur, eins og áður sagði.

Það er einstakt andrúmsloft á Mandi og sjálfsagt að hvetja þá sem ekki hafa komið þangað að kynna sér þetta skemmtilega blóm í flóru miðbæjarlífsins. Nánar má kynna sér staðinn á heimasíðu hans og á Facebook-síðu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.01.2025

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina

Vetrarhátíð Heklu fer fram um helgina
Kynning
09.01.2025

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla

Notalegur lúxus hjá Regus á Laugavegi og Síðumúla
Kynning
23.10.2024

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS

Deilum jólagleðinni með BAUHAUS
Kynning
09.10.2024

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV

Besti vinur Íslendinga snýr aftur – Nýr Mitsubishi Outlander PHEV
Kynning
06.06.2024

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn

Frumsýna nýjan Škoda Kodiaq á laugardaginn
Kynning
06.06.2024

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq

Frumsýning – Nýr Škoda Kodiaq