fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Sigmundur segir forseta fara með rangt mál

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 5. apríl 2016 16:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð segir það ekki satt sem Ólafur Ragnar Grímsson sagði við fjölmiðlamenn fyrr í dag að hann hafi beðið um þingrof. Sagðist hann hann hafa greint forseta frá því að hann hyggðist leggja til að þing yrði rofið og boðað til kosninga ef í ljós kæmi að stjórnin hefði ekki lengur meirihluta á þingi.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Forsætisráðuneytisins. Tilkynningin er svohljóðandi:

Forsætisráðherra og forseti Íslands áttu fund á Bessastöðum nú laust fyrir hádegi í dag. Á fundinum upplýsti forsætisráðherra forseta um stöðu mála í stjórnmálum hér á landi og greindi jafnframt frá áformum sínum um að leggja til við forseta að þing yrði rofið og boðað yrði til almennra alþingiskosninga ef í ljós kæmi að meirihluta stuðningur við ríkisstjórnina væri brostinn. Formleg tillaga um þingrof var hvorki borin upp á fundinum né kynnt forseta eins og skilja mátti af ummælum forseta Íslands að fundi loknum. Forsætisráðherra tjáði forseta að hann hyggðist bera þingrofstillögu formlega upp við forseta ef niðurstaða um framangreint lægi fyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”