fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Stálheppinn leigubílstjóri

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 10. mars 2016 22:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Leigubílstjóri á lögreglumanni líf sitt að þakka eftir að farþegi miðaði byssu að höfði bílstjórans og heimtaði af honum peninga. Atvikið átti sér stað í Berks County í Pennsylvania-ríki í Bandaríkjunum á dögunum.

Á meðfylgjandi myndbandi sést þegar grímuklæddur maðurinn beinir byssu að höfði leigubílstjórans. Leigubifreiðin var stopp á umferðarljósum þegar atvikið varð. Leigubílstjórinn, Ralph Valletta, var skiljanlega óttasleginn en ef vel er að gáð sést að lögreglubíll er fyrir aftan.

Lögreglumaðurinn sem var í umræddri bifreið, Terry Ely, segir í samtali viðWFMZ að hann hafi áttað sig á því að eitthvað óeðlilegt væri í gangi þegar leigubifreiðin ók ekki af stað þrátt fyrir að umferðarljósin væru orðin græn. Terry sá svo að maðurinn, hinn átján ára Martinez-Herrera, var vopnaður. Herrera veitti enga mótspyrnu þegar Terry skipaði honum að leggja vopnið frá sér og koma út úr bifreiðinni.

„Hann stóð upp, hljóp til mín og gaf mér stórt faðmlag,“ segir Terry um viðbrögð Valletta. Valletta segir að líklega hefði ekki mátt muna miklu að hann fengi hjartaáfall, svo óttasleginn var hann.

Martinez-Herrera hefur verið ákærður fyrir vopnað rán, hótun og árás. Hann var færður strax í fangaklefa og á yfir höfði sér fangelsisdóm.

video platformvideo managementvideo solutionsvideo player

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”