

Myndlistarmaðurinn Almarr S. Atlason greinir frá því í tilkynningu á Facebook að þremur málverkum hafi verið stolið af sýningu hans í galleríi í Bolholti 6. Sjónarvottur á vettvangi náði myndum af þjófinum að verki.
Almarr segir að um mikið tjón sé að ræða fyrir sig, mikil vinna og efniskostnaður fari í súginn ef málverkin enduheimtast ekki. Hann greinir svo frá málinu:
„Um hádegisbilið í gær var þessum þremur málverkum rænt af sýningu minni: Byltingunni hefur verið frestað vegna skorts á ríkisfjármagni í Gluggagalleríinu STÉTT: Bolholti 6.
Ég fékk tilkynningu um þetta seinnipartinn í gær og hef verið að spyrjast fyrir og reyna að hafa uppi á verkunum síðan en án árangurs enda ligg ég um þessar mundir heima með flensu og hita og því ekki til stórræðanna.
Mér þykir leitt að þurfa reiða mig á mátt facebook en verkin eru mér mjög mikilvæg og mikil vinna og efniskostnaður nú farin fyrir bý.
Sem betur fer var fólk að vinna í húsinu rétt hjá þar sem sýningin stendur/stóð en eftir að ég sendi tölvupóst á fyrirtækin þar sendi kona mér þessar myndir af þrjótunum við störf. Hún sagði sér hefði þótt þetta mjög skrítið og tók því myndir þegar hún var á leið í hádegismat.
EF EINHVER HEFUR ORÐIÐ VAR VIÐ MYNDIRNAR EÐA ÞEKKIR HVÍTA SENDIBÍLINN EÐA MANNINN Á MYNDUNUM endilega HAFIÐ SAMBAND á: almaratlason@gmail.com, síma 8690660 eða hér á facebook.
Sömuleiðis kæri þjófur, ef þú tókst myndirnar. Skilaðu þeim bara og það verða engir eftirmálar. Ég vill bara myndirnar mínar aftur.
Mbkv. og von um að fá til baka myndirnar mínar.“