fbpx
Sunnudagur 07.júní 2026
Fréttir

Dómur fallinn yfir Margréti – Ákærð fyrir ærumeiðingar í garð Barböru héraðsdómara

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 4. júní 2026 10:16

Margrét á leiðinni í dómsal við aðalmeðferð málsins. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Langþráður dómur Héraðsdóms Reykjaness yfir Margréti Friðriksdóttur hefur nú loks verið kveðinn upp. Margrét var ákærð fyrir ærumeiðingar, ærumeiðandi aðdróttanir og fyrir að hafa haft í frammi ærumeiðandi aðdróttanir gegn betri vitund gagnvart Barböru Björnsdóttur, héraðsdómara hjá Héraðsdómi Reykjavíkur.

Margrét lét ummælin falla á Facebook-síðu sinni í kjölfar þess að Barbara sakfelldi hana í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hótanir í garð Semu Erlu Serdar. Þeim dómi var síðan snúið við í Landsrétti og Margrét sýknuð.

Í Facebook-ummælunum kallaði Margrét Barböru meðal annars „lausláta mellu“ en hún fullyrðir að Barbara hafi staðið í framhjáhaldi með þáverandi yfirmanni sínum, Símoni Sigvaldasyni. Framhjáhaldið hafi meðal annars verið stundað í húsakynnum Héraðsdóms Reykjavíkur.

Barbara neitaði framhjáhaldinu í aðalmeðferð málsins yfir Margréti og Símon neitaði að svara spurningum um aðrar konur en eiginkonu sína. Barbara sagði sögusagnirnar eiga upptök í nafnlausu bréfi sem kollegi hennar, Sigríður Hjaltested, hefði skrifað til Dómstólasýslunnar.

Sjá einnig: Barbara varpaði sprengju um nafnlaust bréf

Aðalmeðferð málsins gegn Margréti var 16. janúar. Ekki náðist að kveða upp dóm í málinu innan tilskilinna fjögurra vikna vegna veikinda dómarans, Jónasar Jóhannssonar, og krafðist Margrét þess þá að málið yrði endurflutt. Við því varð dómarinn en hafnaði kröfu Margrétar um að leiða fram ný vitni. Þessar vendingar tóku sinn tíma og því er loks núna komið að uppkvaðningu dómsins, tæplega hálfu ári eftir aðalmeðferð.

Niðurstaðan var sú að Margrét var sakfelld samkvæmt ákæru. Var hún dæmd til að greiða 200 þúsund króna sekt. 14 daga fangelsi kemur til ef sektin er ekki greidd innan fjögurra vikna. Ekki var krafist ómerkingar ummælanna.

Margrét var ekki viðstödd dómsuppkvaðninguna.

Nánar verður fjallað um dóminn síðar.

Sjá einnig: Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað segja sannleikann“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina

Mega ekki láta leigjandann borga fyrir málunina
Fréttir
Í gær

Guðmundur Ingi lýsir afleiðingum af veikindunum – „Þarf þetta að vera svona?“

Guðmundur Ingi lýsir afleiðingum af veikindunum – „Þarf þetta að vera svona?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir að Íslendingar ættu að vera sérlega stoltir af körfuboltalandsliðinu

Segir að Íslendingar ættu að vera sérlega stoltir af körfuboltalandsliðinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Dómari segir að Barbara hefði þurft að selja blíðu sína 12 manns til að fullyrðing Margrétar stæðist

Dómari segir að Barbara hefði þurft að selja blíðu sína 12 manns til að fullyrðing Margrétar stæðist
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“

Margrét segist vera fórnarlamb samtryggingar valdsins – „Það er greinilega bannað að segja sannleikann“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Safnað fyrir fjölskyldu Ingu Daggar sem lést í kajakslysi – „Stuðningur núna getur skipt miklu fyrir framtíð drengjanna“

Safnað fyrir fjölskyldu Ingu Daggar sem lést í kajakslysi – „Stuðningur núna getur skipt miklu fyrir framtíð drengjanna“