fbpx
Föstudagur 15.maí 2026
Fréttir

Brotist inn í pizzastað í Árbænum – „Við fáum þetta náttúrulega aldrei til baka en það er náttúrlega gott að ná svona fólki“

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 15. maí 2026 18:30

Maðurinn komst á brott með peninga og olli tjóni á veitingastaðnum. Skjáskot/Facebook

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brotist var inn í pizzustaðinn Glóstein í Árbænum í gærkvöldi. Eins og sést í myndbandi frá öryggismyndavél braut þjófurinn rúðu og tæmdi svo peningakassann. Eigandi segir lögregluna hafa tekið á málinu af festu og vonar að þjófurinn verði handsamaður.

„Það kom þarna maður og braut rúðu. Hann tók þarna stærstu rúðuna og fór þar í gegn,“ segir eigandinn Blenda, Berglind Björk Þórhallsdóttir. En Glósteinn er við Nethyl 2 gegnt Árbæjarsafni.

Braut stærstu rúðuna

Innbrotið átti sér stað rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi. Eins og sést á myndbandinu tók inn óprúttni stóran steindrumb sem liggur fyrir utan veitingastaðinn, og er yfirleitt notaður til að halda hurðinni, og kastaði honum í gegnum rúðuna.

Því næst prílaði hann í gegnum rúðuna og fór rakleiðis að peningakassanum, opnaði hann og tæmdi af seðlum.

Talsvert tjón

„Við fáum þetta náttúrulega aldrei til baka en það er náttúrlega gott að ná svona fólki,“ segir Berglind. Vita þau ekki til þess að maðurinn hafi verið að vinna með neinum öðrum. Aðeins hann sjáist á myndbandinu, sem staðurinn birti á Facebook-síðunni í dag.

Fyrir utan peningana sem þjófurinn náði og hina brotnu rúðu þá olli drumburinn sjálfur einnig tjóni. Það er að það sést aðeins á bæði gólfinu og innréttingu sem hann rann á.

Betri viðbrögð lögreglu

Berglind segist vera ánægð með viðbrögð lögreglunnar í málinu. Eigendurnir hafi áður lent í innbroti og þá hafi ekki verið tekið á málinu af jafn mikilli festu og nú.

„Við lentum í því fyrir ári síðan að það var brotist inn. Þá var komið, gerð lögregluskýrsla og svo farið. En í gær var rannsóknarlögreglan kölluð til og staðurinn virkilega rannsakaður. Þeir báðu okkur um vídjó og svo framvegis,“ segir hún.

Í færslunni spurðu eigendurnir hvort að fólk kannaðist við manninn. Ef svo mætti senda upplýsingar á glosteinn@glosteinn.is

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Hvetur Valtý til að fara í meiðyrðamál við sig því þá muni sannleikurinn í Geirfinnsmálinu koma fram

Hvetur Valtý til að fara í meiðyrðamál við sig því þá muni sannleikurinn í Geirfinnsmálinu koma fram
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Þóra Kristín sér fyrir sér þetta samstarf í Reykjavík eftir kosningar – Ekki eru allir sannfærðir

Þóra Kristín sér fyrir sér þetta samstarf í Reykjavík eftir kosningar – Ekki eru allir sannfærðir
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“

Össur segir Björgu daðra við Miðflokkinn – „Viðreisn ætlar sér greinilega að vinna til hægri í borgarstjórn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir það dylgjur hjá Kristrúnu og Degi að Sjálfstæðismenn ætli að selja Orkuveituna

Segir það dylgjur hjá Kristrúnu og Degi að Sjálfstæðismenn ætli að selja Orkuveituna
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fær ekki dýra og bráðnauðsynlega augnaðgerð endurgreidda – Aðeins einn læknir á landinu gat framkvæmt hana

Fær ekki dýra og bráðnauðsynlega augnaðgerð endurgreidda – Aðeins einn læknir á landinu gat framkvæmt hana
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“

Allt á suðupunkti eftir leik Tindastóls og Grindavíkur: „Mjög ljótt af honum að gera þetta“