fbpx
Sunnudagur 19.apríl 2026
Fréttir

Sjómaður geldur fyrir gamlar syndir – Sankaði að sér vopnum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 14. apríl 2026 08:00

Brot mannsins voru framin í Hafnarfirði. Myndin er úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem starfar nú sem sjómaður hefur verið sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ýmis brot á vopnalögum. Meðal annars með því að hafa á annan tug vopna í vörslu sinni og með því að þrívíddarprenta vopn. Brotin voru þó framin nokkru áður en maðurinn byrjaði í núverandi starfi.

Maðurinn var ákærður í fjórum liðum fyrir brot á vopnalögum.

Fyrsta brotið var fólgið í að hafa í júlí 2022 í Hafnarfirði haft í vörslum sínum og borið á almannafæri án viðhlítandi heimildar og án þess að gæta fyllstu varúðar, loftskammbyssu af gerðinni Dan Wesson.

Hin þrjú brotin voru öll framin sama dag í ágúst 2022. Það fyrsta var að hafa á heimili sínu ýmis vopn og skotfæri í vopn í vörslum sínum án viðhlítandi heimildar og án þess að vopnin væru skráð á hann og án þess að tryggja viðeigandi geymslu þeirra í aðskildum og læstum hirslum þar sem óviðkomandi aðili næði ekki til þeirra. Þetta voru þrjár litboltabyssur, þar af ein ósamsett, skotfæri í litboltabyssur, gasbyssa hlaðin með járnkúlum og gasi í skotgeymi, sverð í hulstri með 48 sentímetra löngu blaði, tveir stórir gasbyssubrúsar ætlaðir í litboltabyssur, skotfæri í haglabyssu 5 stykki, 9 millimetra skotfæri 25 stykki, skotgeymir með þremur stykkjum af 9 millimetra skotum, 6 lítil gashylki ætluð í gasbyssur og loks tvö ílát með skotfærum.

Prentun

Þriðja brotið fólst í að hafa ofan á afturdekki bifreiðar loftskammbyssu af gerðinni Dan Wesson, án viðhlítandi heimildar og án þess að skotvopnið væri skráð á manninn og án þess að tryggja viðeigandi geymslu byssunnar í aðskildum og læstum hirslum þar sem óviðkomandi aðili næði ekki til hennar.

Loks var maðurinn ákærður fyrir að hafa á heimili sínu framleitt og verið með í vörslu sinni þrívíddarprentað skotvopn auk íhluta fyrir skotvopn án viðhlítandi heimildar og án þess að skotvopnið væri skráð á hann og án þess að tryggja viðeigandi geymslu þeirra í aðskildum og læstum hirslum þar sem óviðkomandi aðili næði ekki til þeirra, svo sem skammbyssu, skotgeyma og ýmsa íhluti af ófullgerðum skotvopnum sem lögregla lagði hald á við húsleit.

Erfiðlega gekk að birta manninum ákæruna en það tókst að lokum. Maðurinn játaði fyrst í stað hluta brotanna sem hann var ákærður fyrir en neitaði sök í hinum. Málinu var frestað en þegar aðalmeðferð fór fram játaði hann sök í öllum ákæruliðum. Raunar voru ákæruliðirnir þá fimm en ekki fjórir en eftir að málið var dómtekið uppgötvaði dómari að í fimmta liðnum var ekki tilgreint hvaða lagaákvæði brotið teldist varða við. Málið var þá endurupptekið en ákæruvaldið féll frá fimmta liðnum og því stóðu fjórir eftir.

Tekið sig á

Maðurinn hafði áður hlotið refsidóma. Árið 2018 fyrir umferðarlagabrot og árið 2020 fyrir umferðar- og vopnalagabrot en í þau skipti hlaut hann sekt. Árið 2021 var hann dæmdur í 45 daga fangelsi vegna umferðarlagabrota og sviptur ökurétti ævilangt. Árið 2023 hlaut hann skilorðsbundinn dóm fyrir fjársvik. Loks gekkst maðurinn undir sátt hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu í maí 2024 vegna brota gegn lögum um ávana-og fíkniefni.

Við ákvörðun refsingar var horft meðal annars til játningar mannsins og þess að tafir hefðu orðið á málinu sem ekki væri hægt að kenna honum um. Jafnframt var upplýst fyrir dómi að maðurinn hefur snúið lífi sínu til betri vegar og hætt allri fíkniefnaneyslu og sinnir fullu starfi sem sjómaður í dag. Á móti var litið til þess að brot mannsins vörðuðu vörslu á nokkru magni hættulegra vopna án viðhlítandi heimildar og án þess að gæta fyllstu varúðar eða tryggja viðeigandi geymslu þeirra.

Við hæfi þótti að dæma manninn í 30 daga skilorðsbundið fangelsi og öll þau vopn og skotfæri sem hald var lagt á og ákært fyrir vörslu á voru gerð upptæk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“

Drónar valda usla í Grafarvogi – „Lenti hann drónanum nálægt Tesla-bílnum sínum og yfirgaf svæðið mjög fljótt“
Fréttir
Í gær

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi
Fréttir
Í gær

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“

Ómar segir yfirmann vera skrímslið í lífi starfsfólks á Grundarlandi – „Svefntruflanir, kvíði, grátur eftir vaktir“
Fréttir
Í gær

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“

Kemur ríkisstjórninni og ráðuneytinu til varnar – „Ástæða uppsagnarinnar er varla húsnæðisvandinn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“

Nýtt myndskeið sýnir hetjudáð skólastjórans – „Ég efast ekki eitt augnablik um að hann hafi bjargað lífi barnanna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon

Pete Hegseth þekkti ekki muninn á Biblíunni og Pulp Fiction – Vandræðaleg stund í Pentagon