fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fókus

Marvel-leikarinn biðst afsökunar á ummælum sem sármóðguðu aðdáendur síðasta sumar – „Ég biðst innilega afsökunar“

Fókus
Miðvikudaginn 18. mars 2026 10:04

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marvel-leikarinn Jon Bernthal náði heldur betur að móðga netverja síðasta sumar þegar hann sagðist ekki treysta fólki sem leggur sig. Hann ræddi upp blund-hneykslið í hlaðvarpinu Hot Ones Versus í vikunni þar sem skorað var á hann að biðja aðdáendur afsökunar.

„Ég biðst innilega afsökunar á þessu, og satt best að segja þá fór þetta aðeins úr böndunum hjá mér. Ég hef ekkert á móti því að fólk fái sér lúr – ég geri það bara ekki sjálfur og hef eiginlega ekki tíma fyrir það.“

Leikarinn var svo næstum búinn að skjóta sig í fótinn aftur en náði þó að bjarga sér fyrir horn og klára afsökunarbeiðnina.

„Mér finnst eins og þið hafið sennilega – afsakið – mér finnst eins og þið hafið líklega eitthvað betra við tímann að gera en að leggja ykkur, en afsakið. En ég erfi það ekki við ykkur.“

Bernthal spjallaði í hlaðvarpinu við mótleikara sinn úr vinsælu þáttaröðinni The Bear, Ebon Moss-Bachrach, en þeir eru báðir að leika í Broadway-leikritinu Dog Day Afternoon sem verður frumsýnt síðar í þessum mánuði. Moss-Bachrach sló á létta strengi og sagðist ætla að fylgjast sérstaklega vel með í leikhúsinu hvort hann standi Bernthal einhvern tímann að því að leggja sig. Sjálfur segist Moss-Bachrach elska að fá sér blund.

„Ég vildi að ég gæti lagt mig oftar en ég geri.“

Jon Bernthal lék aðalhlutverkið í Marvel-þáttunum The Punisher og Daredevil, þáttunum The Bear og The Walking Dead og svo í vinsælu Accountant-kvikmyndunum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 4 dögum

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“

Harrison Ford kom með óvænta kynlífsjátningu – „Að sjálfsögðu hef ég gert það“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Jónas Sen fór á tónleika í Hörpu og var ekki hrifinn – „Keisarinn var allsber“

Jónas Sen fór á tónleika í Hörpu og var ekki hrifinn – „Keisarinn var allsber“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Segir ástarsambandið við Scorsese hafa haft fleiri lög en lasagna

Segir ástarsambandið við Scorsese hafa haft fleiri lög en lasagna
Fókus
Fyrir 6 dögum

Tíu árum eftir dauða eiginmannsins fæddi hún dóttur þeirra

Tíu árum eftir dauða eiginmannsins fæddi hún dóttur þeirra