fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Fréttir

Þresti sparkað – Segir andkrist hafa hafa náð valdi á Miðflokknum í Múlaþingi

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 17. mars 2026 14:23

Þröstur segir andkrist hafa náð tökum á Miðflokknum í Múlaþingi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þröstur Jónsson mun ekki leiða lista Miðflokksins í Múlaþingi í vor. Hann segir andkristna anda hafa náð tökum á flokksfélaginu.

Austurfrétt greinir frá þessu.

Hafi stjórn Miðflokksdeildar í Múlaþingi óskað eftir því að Þröstur myndi hætta sjálfur. Ástæðan hafi verið sú að Þröstur hefur ítrekað komist í fjölmiðla fyrir að vitna í Biblíuna. En slíkt er harla óvanalegt á Íslandi. Væri þetta „Jesúbull“ ekki líklegt til að afla flokknum fylgis.

Sjá einnig:

Sauð upp úr þegar Þröstur neitaði að yfirgefa salinn – Rætt um lögreglu og handalögmál

Segir Þröstur að sér ofbjóði „aumkunarverð framkoma“ nýrrar stjórnar Miðflokksfélags Múlaþings. Hann sárvorkenni þeim það „andkristna andavald“ sem hafi náð tökum á þeim. Þennan sama andkristna anda hafi hann fundið í nýlegri heimsókn sinni á Alþingi.

Vildi Þröstur að haldið yrði prófkjör í félaginu. Þá myndi raunverulegur vilji flokksmanna koma fram.

Hann segist hins vegar vera þakklátur fyrir tíma sinn í sveitarstjórn. Það er fyrir það traust sem almenningur hafi sýnt honum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Þess vegna var forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni

Þess vegna var forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni
Fréttir
Í gær

Síminn á gott í vændum – Gullkýrin sem hefur bætt mikið við sig á meðan öðrum fatast flugið

Síminn á gott í vændum – Gullkýrin sem hefur bætt mikið við sig á meðan öðrum fatast flugið
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Valgarður segir þetta einkenna þá sem vilja ekki atkvæðagreiðslu um ESB viðræður

Valgarður segir þetta einkenna þá sem vilja ekki atkvæðagreiðslu um ESB viðræður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ung móðir lenti í óhugnanlegri reynslu eftir fyllerí – „Af hverju get ég ekki hreyft fæturna?“

Ung móðir lenti í óhugnanlegri reynslu eftir fyllerí – „Af hverju get ég ekki hreyft fæturna?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fögnuðu nafninu Kalon

Fögnuðu nafninu Kalon
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Rabarbari allt frá ræktun til uppskeru

Rabarbari allt frá ræktun til uppskeru