fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 28. febrúar 2026 11:45

Oddný Harðardóttir. Skjáskot Samstöðin.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Oddný Harðardóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar og ráðherra, var í viðtali á Samstöðinni í morgun. Var þar komið víða við en snemma í viðtalinu rifjaði Oddný upp erfiðleika í æsku vegna drykkju föður hennar.

„Pabbi var rosalega góður maður, klár maður og það lék allt í höndunum á honum. En hann tók túra og lét sig hverfa. Og þá gjarnan með þá peninga sem til voru á heimilinu. Þannig að það segir sig sjálft að það gekk ýmislegt á. Það endaði með því að þau skilja.“

Oddný var 12 ára er foreldrar hennar skildu, yngri systir hennar var 8 ára og eldri systir 16 ára. Sú elsta bar mestu ábyrgðina og reynt var að hlífa yngri systrunum við erfiðleikunum.

„Eins og ég elskaði pabba minn mikið þá létti mér þegar hann fór. Það var bara betra að við værum þarna fjórar. Mamma með okkur þrjár. Það er ekki gaman að segja það en það var samt þannig.“ Síðan átti hann erfið ár en hætti síðan að drekka sjö árum seinna þegar Oddný var 19 ára. „Hann kynnist góðri konu og þau giftast. Hún er enn á lífi. Pabbi dó 2012 þegar ég var búin að vera fjármálaráðherra bara í nokkrar vikur.“

Oddný segir að síðari eiginkona föður hennar hafi ekki bara verið happafengur fyrir hann heldur líka fyrir þær systur, þar sem hún kom á samskiptum á ný á milli þeirra en þau höfðu dottið niður á meðan hann bjó einn. „Hún var og er góð kona.“

Fékk föður sinn til að sverja við biblíuna

Spyrillinn, Björn Þorláksson, spurði hvort spenna og veðrabrigði hafi einkennt heimilislífið eins og gjarnan er á heimilum alkóhólista. Oddný játaði því.

„Ég man eftir því þegar ég sá mömmu gráta í fyrsta sinn. Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu en það er erfitt að rifja þetta upp,“ sagði Oddný og táraðist.

Hún lýsir því að hún hafi 11 ára gömul komið með biblíuna til föður síns og beðið hann um að sverja að „gera þetta aldrei aftur.“ Hann hafi orðið við því en síðan ekki staðið við loforðið.

„Þess vegna finnst mér auðvitað mikilvægt að það séu góð meðferðarúrræði og haldið vel utan um veikan einstakling, alkóhólistann, en það skiptir miklu máli að halda líka vel utan um börnin og makann. Það var auðvitað ekki gert þarna,“ segir Oddný og lýsir jafnframt dugnaði móður sinnar sem hafi haldið heimilinu saman af myndarskap. Hún segir að móðir hennar hafi verið „skemmtileg, hörkutól og kjaftfor kona, á meðan pabbi var meira feiminn maður. Það væsti ekki um okkur, hún sá um að það gengi allt vel þó að við höfum stundum átt lítið af aurum. En hún drakk aldrei áfengi.“

Viðtalið er í spilaranum hér að neðan. Sú umræða sem hér hefur verið drepið á byrjar á 6:45:

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”