fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Unglingar sakfelldir fyrir líkamsárás á Akranesi – Brotaþoli átti að hafa verið í samskiptum við kærustu annars þeirra

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt tvo unglinga fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á þriðja unglinginn. Atvikið átti sér stað að kvöldlagi árið 2023, utandyra á Akraensi. Ákærðu voru sagðir hafa í félagi ráðist á brotaþola, tekið hann niður í jörðina og sparkað í hann ítrekað, auk þess sem annar þeirra hefði slegið hann með hnefa í andlitið.

Brotaþoli hlaut blóðnasir, eymsli yfir nefi, verki í mjóbaki og rispu við lendhrygg. Læknisvottorð studdi frásögn hans um áverka og taldi læknir að þeir gætu samrýmst lýsingu hans á atburðum. Fyrir dómi kom jafnframt fram að andlegar afleiðingar hefðu verið verulegar; brotaþoli missti sjálfstraust, einangraðist félagslega og leitaði til sálfræðings í kjölfarið.

Samkvæmt málsgögnum var orsakar árásarinnar að leita í sögusögnum um að brotaþoli hefði verið í samskiptum við þáverandi kærustu annars ákærðu. Vitni báru að ákveðið hefði verið að fá brotaþola til að koma á staðinn undir fölskum formerkjum. Þegar hann mætti var hann tekin hálstaki, felldur í jörðina og síðan sparkað í hann þar sem hann lá varnarlaus. Vitnisburðir voru að nokkru leyti misvísandi um nákvæma verknaðarskiptingu, en dómurinn taldi sannað að báðir ákærðu hefðu staðið sameiginlega að árásinni.

Við ákvörðun refsingar var tekið tillit til ungs aldurs árásarmanna þegar árásin var framin, fyrir um þremur árum. Annar þeirra var þá rétt tæplega 16 ára en hinn var á sautjánda ári.

Niðurstaðan var að hvor um sig er dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Dóminn má lesa hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”

Þingmenn lentu í miklum í ógöngum í gær: „Heppin að það var símasamband á þessum kafla”