fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hinum smánaða Andrew bannað að ríða út og glenna sig framan í myndavélarnar

Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 26. febrúar 2026 08:00

Það þykir ekki lengur við hæfi að Andrew ríði út. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Andrew Mountbatten-Windsor, hinum smánaða fyrrum prins, hefur verið bannað að ríða út á jörð konungsfjölskyldunnar í Sandringham. Að sögn ráðgjafa krúnunnar er það sagt ekki líta vel út að Andrew fái að spóka sig um á hestbaki á þessari stundu.

Breska blaðið The Daily Mail greinir frá þessu.

Eins og flestir vita var Andrew handtekinn í síðustu viku, á 66 ára afmælisdaginn sinn, vegna gruns um viðskiptamisferli. Þá er hann einnig grunaður um kynferðisbrot í tengslum við Epstein skjölin svokölluðu.

Konungsfjölskyldan hefur brugðist við ásökunum á hendur Andrew með því að svipta hann öllum titlum. Þá er fjölskyldan einnig að fjarlægjast hann og sagt er að önnur dóttir hans, Eugenie sé búin að slíta öllum samskiptum við hann.

Sjá einnig:

Prinsessurnar miður sín eftir handtöku föður síns – Fergie í felum

Nú er greint frá því að Andrew megi ekki lengur fara í útreiðatúra á hinni konunglegu jörð við Sandhringham. Andrew var fluttur til Sandringham fyrir um þremur vikum síðan en síðan þá hefur hann ítrekað sést á hestbaki. Meðal annars hefur hann sést brosa og veifa framan í myndavélar og nærstadda. Hefur þessi hegðun farið fyrir brjóstið á Karli konungi og telja ráðgjafar að þetta líti ekki nógu vel út fyrir konungsfjölskylduna.

Ljósmyndar gulu pressunnar liggja eins og hýenur fyrir utan Sandringham í von um að ná myndum af Andrew. Hann hefur aðeins einu sinni sést úti við síðan hann var handtekinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“
Fréttir
Í gær

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan

Árásir halda áfram eftir sögulegan dauðdaga – Blendnar tilfinningar írönsku þjóðarinnar og mikil óvissa framundan
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“

Miðflokksmaður vill vita hvers vegna forsetamaki Íslands afþakkaði boð í Hvíta húsið – „Hvað var mikilvægara í dagskránni?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart