fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Missir prófið í sex mánuði og fær sekt eftir glæfraakstur

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 24. febrúar 2026 11:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Knattspyrnumaðurinn Leny Yoro hefur verið sviptur ökuleyfi eftir að hafa ekið á 72 mílum á klukkustund framhjá íbúðarhúsum og skóla.

Miðvörður Manchester United var stöðvaður á Porsche Cayenne GTS bifreið sinni, sem metin er á um 170 þúsund pund, eftir hraðakstur í ágúst síðastliðnum.

Samkvæmt dómsgögnum var hinn tvítugi Frakki á ferð á svæði í úthverfinu Withington í Manchester þar sem hámarkshraði er 30 mílur á klukkustund.

Lögmenn hans báru fram afsökunarbeiðni fyrir hans hönd fyrir dómi í Crewe. Þar kom fram að Yoro hefði verið að flýta sér að skutla vini sínum á lestarstöð og að umferð hefði verið lítil á þeim tíma.

Yoro játaði brotið og þurfti ekki að mæta sjálfur fyrir dóm. Hann var sviptur ökuleyfi í sex mánuði, auk þess sem honum var gert að greiða 666 punda sekt, 120 pund í málskostnað og 266 punda viðbótargjald.

Í bréfi til dómstólsins lagði lögmaður hans áherslu á skjóta játningu leikmannsins og að hann hygðist ekki mótmæla sviptingu ökuleyfis. Þá kom einnig fram að Yoro vildi biðjast afsökunar á atvikinu og segðist gera sér grein fyrir alvarleika málsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Í gær

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
433Sport
Fyrir 2 dögum

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina

Opta-ofurtölvan stokkar spilin – Þetta lið er líklegast til að vinna Meistaradeildina
433Sport
Fyrir 2 dögum

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“

Harðorður Sigurbjörn með eldræðu um stöðu mála á Íslandi – „Mér finnst þetta galið“
433Sport
Fyrir 2 dögum

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna

Gera hugsanlega hlé svo menn geti rofið föstuna
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta

Segir ekkert til í því að Klopp sé að hætta
433Sport
Fyrir 2 dögum

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn