fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Blóðug slagsmál í Keflavík út af epli – Kjálkabrotnaði á þremur stöðum

Kristinn H. Guðnason
Mánudaginn 23. febrúar 2026 12:30

Slagsmálin áttu sér stað í Keflavík.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir erlendir menn hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir líkamsárás gagnvart hvorum öðrum á sama tíma. Annar fékk þó tvöfalt lengri dóm en hinn.

Atvikið átti sér stað að kvöldi 22. nóvember árið 2022 í leiguherbergi annars mannsins í Reykjanesbæ. Lögreglu barst tilkynning frá konu, öryggisverði á staðnum, um klukkan 22 um að tveir menn hefðu verið að slást en búið væri að skilja þá í sundur.

Þegar konan kom að mönnunum sögðust þeir ekki hafa verið að slást heldur sögðust þeir báðir hafa dottið. En þegar lögregla spurði mennina kom í ljós að svo var ekki heldur hafði komið til alvarlegra slagsmála á milli þeirra. Hvorugur þeirra er nafngreindur í dóminum, heldur sem Y og X.

Annar þeirra, Y, sagði að X hafi verið ósáttur við að Y hafi fengið epli frá Útlendingastofnun en ekki hann sjálfur. Hafi gremjan orðið svo mikil að X hafi ráðist á Y og þeir svo skipst á hnefahöggum.

X sagði við lögreglu að hann og Y hafi byrjað að rífast en rifrildið hafi svo leiðst út í slagsmál. Sagðist hann ekki vilja segja hvor þeirra hafi átt upptökin að þessari glímu. Þeir hefðu þekkst í heimalandinu og líkaði þá illa hvorum við annan.

Kjálkabrotinn

Það sá á báðum mönnunum og þurfti að flytja Y á sjúkrahús með sjúkrabifreið. Kom í ljós að hann var kjálkabrotinn á þremur stöðum og þurfti hann að gangast undir aðgerð. Seinna fékk hann svo sýkingu í kjálkann. Þann 5. desember þetta ár leitaði hann á lögreglustöð og lagði fram kæru.

X þurfti líka að leita á bráðamóttöku og fór þangað í fylgd lögreglu. Var hann með skurð fyrir ofan vinstri augnbrún sem þurfti að sauma, sprungu á neðri vör og skrámur og mar á andliti. Löngu seinna, eða þann 24. apríl árið 2024, leitaði X svo á lögreglustöð og kærði Y fyrir líkamsárás.

Hefði talað illa um Úkraínu

Fyrir dómi lýsti Y atburðarásinni svo að hann hefði verið á krá í Reykjavík og fengið sér nokkra bjóra. Svo fór hann heim til Keflavíkur og hitti vini sína í leiguherbergi sínu. Einn þeirra hefði boðið honum inn á herbergi til að fá epli en þar hefði fyrir verið X. X hafi setið í rúmi og öskrað mjög hátt þegar hann hafi séð Y og viljað hann burt.

X hefði svo staðið upp og ógnað honum. Eftir það hafi atburðarásin verið mjög hröð.

„Við fórum að slást, ég sló hann tvisvar, hann fór í gólfið,“ sagði Y. Höggin hafi gengið á milli þeirra uns X hafi sagst ekki vlja slást lengur. Þá hafi þeir farið inn á baðherbergi, þrifið sig og verið sáttir. Þá hafi öryggisvörðurinn komið og spurt hvað hafði gerst.

Ástæðan fyrir því að þeim væri ekki vel við hvorn annan væri sú að X hefði talað illa um Úkraínu í matarboði. Eftir það hafi vinirnir hætt að bjóða honum í mat og hætt að tala við hann.

Vildi engin læti

X sagðist hafa verið á herbergi sínu að lesa þegar Y hafi komið ásamt félaga sínum, hafi verið mjög árásargjarn, hávær og verið af honum áfengislykt. „Ég vildi ekki hafa læti í herberginu,“ sagði X. Y hafi ekki viljað fara út úr herberginu.

Þeir hafi farið að rífast og hafi Y slegið hann þrisvar sinnum. Hafi hann lent á vegg og þá tekið Y föstum tökum svo hann gæti ekki lamið hann áfram. Þeir hefðu svo farið í sitt hvora áttina og X farið að þrífa blóðið af sér. En svo lent aftur saman. Hann neitaði því ekki að hafa slegið Y en það hafi verið í sjálfsvörn.

Báðir bera sök

Dómari ákvað að báðir bæru sök í málinu. X fékk tveggja mánaða fangelsisdóm en Y eins mánaða. Báðir eru dómarnir hins vegar skilorðsbundnir til tveggja ára.

X var gert að greiða Y 900 þúsund krónur í miskabætur auk rúmlega 350 þúsund krónur í málskostnað sem og rúmlega 1 milljón í málsvarnarlaun lögmanns síns.

Y var gert að greiða X 300 þúsund krónur, rúmlega 350 þúsund krónur í málskostnað og rúmlega 1 milljón í málsvarnarlaun lögmanns síns.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“