fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
433Sport

Casemiro sagður hafa skoðað aðstæður Í Miami sem vilja fá hann

Hörður Snævar Jónsson
Laugardaginn 21. febrúar 2026 16:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brasilíski miðjumaðurinn Casemiro er eftirsóttur á leikmannamarkaðnum þar sem hann undirbýr brottför frá Manchester United í sumar þegar samningur hans rennur út.

Casemiro, sem verður 34 ára á næstu dögum, hefur vakið áhuga frá nokkrum félögum, þar á meðal Inter Miami í MLS-deildinni og uppeldisfélagi sínu Sao Paulo í Brasilíu. Hann sást nýverið í Miami með eiginkonu sinni og er talið að ferðin hafi einnig verið notuð til að kynna sér aðstæður þar.

Inter Miami, sem er í eigu David Beckham, vill styrkja miðjuna eftir að Sergio Busquets lagði skóna á hilluna og hefur sett Casemiro ofarlega á óskalista sinn. Ef af félagaskiptum verður gæti hann spilað með Lionel Messi.

Einnig hafa FC Porto og félög í Sádi-Arabíu sýnt honum áhuga. Sao Paulo er sagt tilbúið að bjóða honum tveggja ára samning og mögulegt starf hjá félaginu að honum loknum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Í gær

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn

United og Liverpool draga sig úr kapphlaupinu ef þetta er verðmiðinn
433Sport
Í gær

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn

Liverpool setur miðvörð á óskalista sinn
433Sport
Í gær

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð

United og Liverpool ætla ekki að borga uppsett verð