fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Harmleikur á Tenerife: Maður myrti son sinn og var síðan skotinn af lögreglu

Pressan
Föstudaginn 20. febrúar 2026 17:00

Frá Tenerife.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tíu ára drengur var myrtur og móðir hans er illa særð eftir sveðjuárás á heimili í suðurhluta Tenerife, nánar tiltekið í bænum Cabo Blanco.

Canarian Weekly greinir frá.

Atburðurinn átti sér stað á föstudagsnótt. Er lögregla koma á vettvang lá 10 ára drengur í blóði sínu eftir sveðjuárás. Var ekki lífsmark með drengnum. Árásarmaðurinn var faðir drengsins. Móðirin var illa særð eftir sveðjuáverka frá manninum en það tókst að koma henni á sjúkrahús þar sem hún liggur þungt haldin.

Maðurinn streittist gegn handtöku og réðst að  lögreglumönnum með sveðjunni og særðist einn lögreglumaður alvarlega en maðurinn hjó í annan handlegg hans. Var lögreglumaðurinn fluttur á sjúkrahús en er ekki í lífshættu.

Lögreglumenn neyddust til að skjóta árásarmanninn og lét hann lífið á vettvangi.

Lögregla hefur staðfest að árásarmaðurinn er með hreina sakaskrá og engar tilkynningar höfðu borist um ofbeldi á heimilinu. Málið er til áframhaldandi rannsóknar.

Sjá nánar hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi
Pressan
Í gær

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Í gær

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir