

Mikill meirihluti Breta myndi greiða atkvæði með því að ganga aftur í Evrópusambandið yrði slík atkvæðagreiðsla haldin nú. Nánast allir yngri Bretar vilja ganga í Evrópusambandið.
Þetta kemur fram í nýrri könnun YouGov fyrir sjónvarpsstöðina ITV.
Alls myndu 63 prósent Breta greiða atkvæði með því að ganga aftur í Evrópusambandið en 37 prósent gegn því. Eru því um tvöfalt fleiri sem eru fylgjandi inngöngu en á móti henni.
Hjá yngsta aldurshópnum, 16 til 24 ára, er munurinn sláandi. 83 prósent myndu greiða atkvæði með að ganga í Evrópusambandið en aðeins 17 prósent gegn því. Þetta er kynslóðin sem fékk ekki að greiða atkvæði árið 2016 þegar hin afdrifaríka ákvörðun var tekin.
Útgangan var samþykkt á sínum tíma með 52 prósentum atkvæða gegn 48. Andstaðan var mest í Skotlandi, Norður Írlandi og í London.
Tveir stjórnmálaflokkar í Bretlandi, Frjálslyndir demókratar og Græningjar, hafa það á stefnuskránni að ganga aftur inn í Evrópusambandið eða að minnsta kosti mynda tollabandalag með því. Verkamannaflokkurinn, sem situr í ríkisstjórn, vill bæta samstarfið við Evrópusambandið en hefur inngöngu ekki á dagskrá.
Hægri öfgaflokkurinn Umbótaflokkurinn, er á móti aðild, en forsvarsmenn hans hafa viðurkennt að útgangan hafi ekki skilað því sem útgöngusinnar lofuðu fyrir atkvæðagreiðsluna árið 2016. Kenna þeir Íhaldsflokknum, sem var í ríkisstjórn á þeim tíma, um að hafa klúðrað útgöngunni.