fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Læknir segir tilefni til að hafa áhyggjur ef þú heyrir hjartsláttinn þinn

Pressan
Sunnudaginn 22. febrúar 2026 18:30

Pössum hjartað okkar vel. Mynd: Getty.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ekki óeðlilegt að heyra sinn eigin hjartslátt. Það getur til dæmis gerst ef maður gengst undir læknisskoðun eða þegar maður tekst á við líkamlegt erfiði. En sumir heyra hjartslátt sinn reglulega, aðallega þeir liggja út af.

Anthony Youn, læknir í Detroit í Bandaríkjunum, segir að ef fólk heyri oft hjartslátt sinn geti það kallað á rannsóknir. Hann ræddi þetta nýlega í myndbandi sem hann birti á TikTok.

„Ef þú liggur stundum á hliðinni og heyrir hjartað slá, þá er það líklega hálsslagæðin sem liggur á koddanum,“ segir hann í myndbandinu.

Hann segir að ef fólk heyri hjartslátt sinn reglulega, bæði þegar það liggur og stendur, geti það verið merki um púlsandi eyrnasuð.

Samkvæmt Penn Medicine er púlsandi eyrnasuð útgáfa af eyrnasuði þar sem fólk heyrir hljóð án þess að utanaðkomandi uppspretta komi við sögu. Eyrnasuð er oft tengt við sífellt suð eða tón, en púlsandi eyrnasuði frekar lýst sem taktföstu hljóði sem líkist hjartslætti. Sumir segja hljóðið vera mjög skýrt. Einn sjúklingur sagði í samtali við New York Post að þetta væri eins og „ryksuga og þvottavél að þeytivinda“.

Youn benti á að púlsandi eyrnasuð sé ekki eina ástæðan. Aðrar hugsanlegar ástæður geti verið stífla í eyrunum, of hár blóðþrýstingur eða þröngar æðar í höfði og hálsi.

Einnig geta óeðlilegar tengingar á milli slagæða og bláæða, góðkynja æxli í höfði eða hálsi, blóðskortur eða ólétta haft áhrif á blóðstreymið og starfsemi hjartans.

Penn Medicine ráðleggur fólki, sem upplifir púslandi eyrnasuð, að hafa samband við lækni.

Youn segir að þetta sé yfirleitt alveg hættulaust en þó geti alvarlegar ástæður verið að baki þessu og því sé rétt að leita til læknis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu