fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þess vegna gelta hundar að sumum en ekki að öðrum

Pressan
Sunnudaginn 22. febrúar 2026 17:30

Þessi hundur virðist ekki vera mjög stressaður. Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hundaeigendur þekkja þetta eflaust flestir. Hurðin opnast og hundurinn breytist í pirraðan dyravörð sem geltir eða urrar að þeim sem kemur inn eða dregur sig í hlé. En þetta gerir hann þó ekki gagnvart öllum gestum.

Hundurinn tekur á móti Höllu fræknu þinni með gleðilátum en þegar Gunnar vinur þinn kemur, þá mæta honum ógnvænleg hljóð sem minna helst á hrollvekju.

En hver er ástæðan fyrir þessu? Því var svarað í ítalska miðlinum Corrieredellosport.

Þar kemur fram að ástæðuna sé að finna í háþróaðri getu hundsins til að lesa í umhverfið.

Rannsóknir hafa leitt í ljós að mismunandi viðbrögð hundsins við gestum séu ekki tilviljun ein. Þau byggjast á samspili merkja sem við tvífætlingarnir tökum oft ekki eftir.

Hundurinn getur hins vegar safnað upplýsingum með nefinu, augunum og eyrunum og ekki síst með því að lesa í stemmninguna.

Ef hundurinn tekur eftir neikvæðri orku, fer hann í varnarstöðu og bregst við með því að gelta eða virðast spenntur.

Stundum byggjast viðbrögð hans einfaldlega á því hvernig hann les augnaráð fólks eða hvernig göngulag þess er og lyktin af því getur einnig vakið margvísleg viðbrögð hjá hundinum.

Hjá hundum, sem eru ekki vanir mörgu fólki, getur hegðun af þessu tagi verið ansi áberandi. En í raun og veru eru þeir að vernda hina öruggu höfn sína í lífinu, þig og heimili ykkar.

Þótt hundurinn gelti að einhverjum, þá þýðir það ekki endilega að viðkomandi sé slæm manneskja.

Hegðun hundsins getur verið tilkomin vegna óöryggis eða fyrri reynslu eða jafnvel reynsluskorts. Nýjar og óþekktar aðstæður geta einnig gert hundinn órólegan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér