fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Þrír menn handteknir fyrir að frelsissvipta og nauðga 48 ára konu á Tenerife

Pressan
Miðvikudaginn 18. febrúar 2026 20:00

Frá Santa Cruz. Mynd: Wikpedia.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír menn hafa verið handteknir í Santa Cruz, höfuðborg Tenerife, vegna gruns um að hafa frelsissvipt og nauðgað 48 ára gamalli konu.

Canarian Weekly greinir frá.

Á sunnudag fékk lögregla tilkynningu um að konan hefði verið illa til reika og fáklædd úti á götu og tjáði hún vegfarendum sem tilkynntu um málið að hún hefði flúið úr nærliggjandi húsi þar sem henni var haldið nauðugri og hún misnotuð. Lögreglumenn fundu konuna og komu henni  til hjálparmiðstöðvar í nágrenninu.

Konan greindi lögreglu frá því að hún hefði hitt einn hinna grunuðu, þrítugan karlmann, kvöldið áður. Þegar komið var inn á heimili hans hafi þar verið tveir aðrir menn, 31 og 47 ára, sem gripu í hana, héldu henni fastri og afklæddu hana. Á meðan þeir héldu henni braut þrítugi maðurinn gegn henni.

Henni tókst síðan að flýja af vettvangi og vegfarendur komu henni til hjálpar og hringdu í lögreglu.

Lögregla fór inn í húsið sem konan vísaði þeim á og fann þar hina þrjá grunuðu. Einnig fann hún hluta af fötum konunnar. Íbúðin er nú innsigluð og lögregla leita þar sönnunargagna en mennirnir voru handteknir.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi

Segja að þessi áhugamál séu góð til að lifa heilbrigðara og lengra lífi
Pressan
Í gær

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“

Lyf gegn fótaóeirð höfðu skelfilegar aukaverkanir – „Þetta hefur eyðilagt líf mitt“
Pressan
Í gær

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum

Segja algjöran óþarfa að taka verkjalyf við bakverkjum
Pressan
Í gær

Þetta þýða algengustu draumarnir

Þetta þýða algengustu draumarnir