fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Ný skýrsla – Rússar undirbúa sig undir stórstyrjöld

Pressan
Sunnudaginn 22. febrúar 2026 10:30

Rússneskir hermenn í Úkraínu. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir að rússneskt efnahagslíf sé í rúst þá framleiðir rússneski vopnaiðnaðurinn vopn sem aldrei fyrr. Þetta er mörgum áhyggjuefni en fyrir okkur sem búum í NATÓ-ríki, þá þurfum við ekki að eiga von á rússneskir hermenn heimsæki okkur á næstunni en það þýðir ekki að Rússar séu ekki að undirbúa sig undir að halda í víking á einhverjum tímapunkti.

Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar skýrslu sem eistneska leyniþjónustan birti nýlega. Í henni er varað við því að Rússar séu á fullu við að undirbúa „næsta stríð“, stríð sem muni fylgja í kjölfar stríðsloka í Úkraínu.

Hinn óháði og útlægi rússneski miðill Meduza, sem starfar nú í Riga í Lettlandi, hefur séð skýrsluna og segir að Kaupo Rosin, framkvæmdastjóri leyniþjónustunnar, segi í henni að ekkert bendi til að Vladímír Pútín hafi í hyggju að breyta um stefnu, ekki einu sinni þótt stríðið í Úkraínu hafi staðið yfir í fjögur ár og hafi valdið dauða eða alvarlegum meiðslum einnar milljónar rússneskra hermanna.

Rosin segir í skýrslunni að markmið Pútíns sé að ná yfirráðum yfir allri Úkraínu.

Í skýrslunni kemur fram að engin merki sjáist þess enn að Rússar séu að draga úr hernaðargetu sinni en samt sem áður telur Rosin ekki hættu á árás þeirra á þessu ári eða því næsta.

Hann segir að NATÓ-ríkin verði að halda áfram að styrkja hernaðarmátt sinn til að tryggja öryggi aðildarríkjanna. Rússar muni halda áfram að styrkja her sinn á næstu árum og tryggja verði að útreikningar þeirra á hernaðargetu séu alltaf NATÓ í hag.

Leyniþjónustan segir að ákveðnar ógnir steðji að ákveðnum nágrannaríkjum þrátt fyrir að ekki sé líklegt að Rússar ráðist beint á NATÓ-ríki í nánustu framtíð.

Segir leyniþjónustan að þrátt fyrir að tilraunir Rússlands til að hrekja ríkisstjórn Moldóvu, sem er hliðholl Vesturlöndum, frá völdum hafi mistekist, þá muni Kreml „nánast örugglega“ læra af mistökunum og reyna aftur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér