fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Setti Internetið á hliðina eftir að hann kýldi samnemanda fyrir að styðja ICE – „Bandarísk hetja“

Pressan
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 11:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Netverjar keppast nú við að bera kennsl á ungling sem setti netið á hliðina eftir að hann ákvað að kýla annan nemanda í Lake Zurich-gagnfræðaskólanum í síðustu viku en myndband af atvikinu hefur farið sem eldur í sinu um netheima.

Myndbandið er tekið upp af þolanda árásarinnar, Danny Spud, sem er með 60 þúsund fylgjendur á Instagram og rúmlega 35 þúsund fylgjendur á TikTok. Spud útskýrir að á fimmtudaginn í síðustu viku hafi nemendur við skólann mótmælt tolla- og innflytjendaeftirlitinu, ICE. Spud ákvað þá að útbúa skilti þar sem hann sagðist elska ICE og gekk með það um skólann.

„Við styðjum ICE og lögregluna,“ heyrist Spud kalla í myndbandinu á meðan hann röltir um ganga skólans. Einn nemandi sem gengur framhjá segir að þetta sé galið útspil hjá Spud.

Svo gengur einn nemandi upp að Spud og segir bara blákalt: „Sko, ég ætla að kýla þig í smettið.“

Spud virðist hissa og segir: „Ætlarðu að berja mig?“

Hinn nemandinn segir þá: „Já.“

Spud bendir þá nemandanum á að það sé líklega ekki góð hugmynd: „Þú munt lenda í vandræðum fyrir það.“

Hinn nemandinn heldur ró sinni og segir einfaldlega: „Okey,“ og svo kýldi hann Spud í andlitið eins og hann hafði lofað.

Öryggisvörður kemur þá að og kemur í veg fyrir frekari átök. Spud lýsti því yfir að hann væri að standa með sannfæringu sinni með friðsömum hætti.

Nemandinn sem kýldi hann segir þá: „Þú mátt friðsamlega fokka þér.“

Spud heyrist þá kvarta undan því að hinn nemandinn hafi blótað, enda sé það gegn reglum skólans.

Myndbandið hefur sett allt á hliðina. Sumir kalla eftir því að ónefndi nemandinn verði ákærður fyrir líkamsárás og vikið úr skólanum. Aðrir hylla hann sem hetju. Þriðji hópurinn bendir á að atvikið sé lýsandi fyrir stöðuna í Bandaríkjunum, þar sem hægrið og vinstrið geti ekki lengur rætt málin heldur grípi bara til handalögmála.

Skólinn hefur neitað að tjá sig um málið enda sé starfsmönnum ekki heimilt að ræða málefni sem varða nemendur. Spud hefur þó kvartað undan því að hafa nú verið settur í bann á Instagram en það mun þó ekki tengjast þessu atviki heldur öðru myndbandi þar sem hann sást kveikja á brunavarnakerfi skólans, en það myndband braut gegn reglum miðilsins.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu