fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Virðast hafa farið mannavillt þegar þeir rændu 85 ára afa – Lögregla biðlar til mannanna

Pressan
Þriðjudaginn 17. febrúar 2026 09:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óvenjulegt mál er nú til rannsóknar í Sydney í Ástralíu en það varðar hvarf 85 ára karlmanns síðastliðinn föstudag. Maðurinn var numinn á brott af heimili sínu en lögregla segir fullvíst að mannræningjarnir hafi farið mannavillt.

Það var snemma á föstudag að lögregla fékk tilkynningu um að þrír menn hefðu ruðst inn til mannsins, Chris Baghsarian, og borið hann út af heimili sínu í North Ryde-hverfinu í Sydney.

Rannsókn lögreglu hefur leitt ýmislegt í ljós og segir Andrew Marks, yfirmaður glæpadeildar lögreglu, að mennirnir hafi að líkindum ætlað að ræna einstaklingi sem tengist Alameddine-glæpasamtökunum í vesturhluta Sydney.

„Baghsarian er afi sem er ekki tengdur á neinn hátt inn í glæpaheiminn,“ sagði Marks við blaðamenn í gær.

„Ég er milljón prósent viss um að þeir séu með rangan mann. Þetta er ekki tilvik þar sem þeir taka mann af handahófi af því bara. Þeir ætluðu að taka einhvern ákveðinn einstakling, en tóku rangan mann,“ bætti hann við.

Marks hvatti mannræningjanna til að sleppa Baghsarian eins fljótt og auðið er. Hann var klæddur í gráar náttbuxur og rauð- og grænröndótta skyrtu þegar honum var rænt að sögn lögreglu.

Þá bætti Marks við að hann þyrfti á lyfjum að halda og því væri mikilvægt að honum yrði sleppt sem fyrst.

„Sú staðreynd að þessir gerendur eða ræningjar hafa haft svona rangt fyrir sér er vissulega áhyggjuefni,“ sagði Marks, en lagði jafnframt áherslu á að þeir sem eiga aldraða foreldra eða afa og ömmur „þurfi ekki að óttast.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu