fbpx
Mánudagur 16.febrúar 2026
433Sport

Ferill Grealish gæti tekið óvænta stefnu í sumar

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. febrúar 2026 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jack Grealish er sagður á blaði hjá Barcelona, sem lítur á Englendinginn sem varakost ef félagið gengur ekki frá varanlegum kaupum á Marcus Rashford. Spænska blaðið El Nacional heldur þessu fram.

Grealish hefur endurvakið feril sinn á láni hjá Everton eftir erfitt tímabil hjá Manchester City. Hann hefur skorað tvö mörk og lagt upp sex í 20 deildarleikjum og Everton hefur möguleika á að kaupa hann á um 50 milljónir punda. Hann meiddist þó á dögunum og verður frá út tímabilið.

Samningur Grealish við City rennur til 2027, en hann er ekki í áætlunum á þeim bænum og má fara fyrir sanngjarna upphæð í sumar.

Barcelona fékk Rashford að láni frá Manchester United síðasta sumar með kauprétti næsta sumar. Það er þó ekki víst að félagið ráði við það fjárhagslega, en Rashford hefur staðið sig vel í Katalóníu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Stjarna á sjötugsaldri kyssti þrjár yngri dömur samtímis – Eiginkona hans var með í för

Stjarna á sjötugsaldri kyssti þrjár yngri dömur samtímis – Eiginkona hans var með í för
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Fær hressilega á baukinn – Hlutirnir farið úr öskunni í eldinn frá því hann yfirgaf United

Fær hressilega á baukinn – Hlutirnir farið úr öskunni í eldinn frá því hann yfirgaf United
433Sport
Í gær

Telur að nýr stjóri Tottenham geti aldrei labbað frá starfinu með bros á vör

Telur að nýr stjóri Tottenham geti aldrei labbað frá starfinu með bros á vör
433Sport
Í gær

Sjáðu markið – Ronaldo skoraði í endurkomu sinni eftir verkfallið

Sjáðu markið – Ronaldo skoraði í endurkomu sinni eftir verkfallið
433Sport
Í gær

Kom honum á óvart í fari Sölva

Kom honum á óvart í fari Sölva
433Sport
Í gær

Ratcliffe hringdi í Glazer fjölskylduna og baðst afsökunar

Ratcliffe hringdi í Glazer fjölskylduna og baðst afsökunar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Svona gæti liðið hjá Tottenham litið út hjá Tudor – Mjög hrifin af þriggja manna vörn

Svona gæti liðið hjá Tottenham litið út hjá Tudor – Mjög hrifin af þriggja manna vörn
433Sport
Fyrir 2 dögum

Fékk góðar fréttir af vini sínum – „Hefði óskað honum góðs gengis ef hann hefði farið“

Fékk góðar fréttir af vini sínum – „Hefði óskað honum góðs gengis ef hann hefði farið“