fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
433Sport

Fyrrverandi starfsmaður Manchester United gagnrýnir leikmann liðsins – Segir hann hafa gjörbreyst með tímanum

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 16. febrúar 2026 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrverandi starfsmaður Manchester United, Rod Thornley, hefur gagnrýnt Marcus Rashford og segir framherjann hafa kastað ferli sínum hjá félaginu frá sér.

Thornley starfaði sem nuddari hjá United á árunum 2001 til 2019 og vann með Rashford undir lok veru sinnar á Old Trafford. Í viðtali við The Busby Way Podcast sagði hann að Rashford hefði breyst með tímanum.

„Hann varð óhamingjusamur. Ég sá leikmann sem var glaður og yndislegur strákur breytast. Áran yfir honum var ekki góð,“ sagði Thornley og bætti við að það hefði síðan smitast inn á völlinn, hann hafi skort orku og ákefð.

Rashford, sem sló í gegn með tveimur mörkum í frumraun sinni árið 2016, hefur leikið yfir 400 leiki fyrir United. Eftir að hafa ekki náð saman við þáverandi knattspyrnustjóra Ruben Amorim fór hann á láni til Barcelona síðasta sumar.

Hjá Barcelona hefur hann fundið taktinn á ný, skorað 10 mörk og lagt upp 13 í 34 leikjum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Walker kallar þetta gott
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Hlaut vægan dóm fyrir að fela myndavél í kvennaklefanum – Hafði stundað þetta í fjögur ár

Hlaut vægan dóm fyrir að fela myndavél í kvennaklefanum – Hafði stundað þetta í fjögur ár
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fyrrum leikmaður Manchester City í ævilangt bann

Fyrrum leikmaður Manchester City í ævilangt bann
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli

Gefur innsýn inn í endurhæfingu sína – Notar hjól sem vekur athygli
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum

Segir frá sorglegum degi í herbúðum United á dögunum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Útskýrir orð sín um Carrick eftir að hann var sakaður um árás í hans garð

Útskýrir orð sín um Carrick eftir að hann var sakaður um árás í hans garð
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Lögreglan herðir aðgerðir gegn þeim sem nota ólöglegan búnað

Lögreglan herðir aðgerðir gegn þeim sem nota ólöglegan búnað
433Sport
Í gær

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“

Segir Rúnar Kristins hafa þurft að slökkva elda á síðasta ári – „Been there done it, bought the T-shirt. Haldiði kjafti“
433Sport
Í gær

Eddie Howe horfir í gamla félagið

Eddie Howe horfir í gamla félagið