fbpx
Miðvikudagur 11.mars 2026
Fréttir

Guðmundur Ingi hættir sem varaformaður Vinstri grænna

Ritstjórn DV
Mánudaginn 16. febrúar 2026 10:40

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðmundur Ingi Guðbrandsson hefur ákveðið að gefa ekki áfram kost á sér sem varaformaður Vinstri grænna. Þetta tilkynnir hann í færslu á Facebook.

„Kæru vinir! Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér til forystu hjá okkur Vinstri grænum á landsfundinum í byrjun mar,“ segir Guðmundur Ingi sem hefur verið í VG frá stofnun hreyfingarinnar og sinnt ýmsum trúnaðarstörfum. Svandís Svavarsdóttir tilkynnti í desember að hún myndi ekki gefa kost á sér til formennsku í flokknum.

Guðmundur Ingi varð umhverfis- og auðlindaráðherra árið 2017 sem utanþingsráðherra og var árið 2019 kosinn varaformaður VG. Tveimur árum síðar varð hann alþingismaður fyrir Suðvesturkjördæmi.

Þá var hann um tíma formaður flokksins eftir að Katrín Jakobsdóttir hætti og þar til Svandís Svavarsdóttir var kjörin formaður á síðasta landsfundi.

„Að sinna starfi ráðherra í sjö ár og vera í forystu stjórnarflokks sem fer fyrir ríkisstjórn er reynsla sem ég mun alltaf búa að og ég er óskaplega þakklátur fyrir traustið sem félagar mínir í VG og samstarfsfólk í ríkisstjórn og á Alþingi hafa treyst mér fyrir. Ég er gæfusamur maður að hafa fengið öll þessi tækifæri og fyrir þau þakka ég af auðmýkt, ekki síst Katrínu og félögunum í VG,” segir Guðmundur Ingi meðal annars.

Í yfirlýsingunni segist Guðmundur telja að Vinstri græn geti náð vopnum sínum aftur og orðið leiðandi á vinstri væng stjórnmálanna, í umhverfis- og náttúruverndarmálum og í baráttunni fyrir jöfnuði, mannréttindum og friði.

„Ég mun leggja mitt að mörkum til uppbyggingar hreyfingarinnar okkar, en ekki sem forystumaður hennar. Ég þakka öllum þeim sem hafa hvatt mig til að bjóða mig fram til forystu nú sem fyrr og útiloka ekki að gefa kost á mér í næstu alþingiskosningum. Ég brenn áfram fyrir réttlátu og sanngjörnu samfélagi þar sem er pláss fyrir okkur öll. Þar sem við finnum lausnir í umhverfismálum með gleraugum réttlætis og áttum okkur á því að það verður lítið rými í framtíðinni fyrir félagsleg gildi og mannréttindi ef við vinnum ekki bug á loftslagsbreytingum, mengun og tapi á líffræðilegri fjölbreytni. Sú umhverfisbarátta er barátta fyrir áframhaldandi tilveru og velferð okkar á jörðinni og skapar undirstöðu fyrir samfélag jöfnuðar og réttlætis. Fyrir þessum gildum öllum mun ég áfram berjast.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Walker kallar þetta gott
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Mistökin sem við gerum í matvöruversluninni sem geta gert innkaupin enn dýrari

Mistökin sem við gerum í matvöruversluninni sem geta gert innkaupin enn dýrari
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman

Blóðug aðkoma í Edition-málinu – Lýsti sjálfri sér sem skrímsli og sagði fjölskylduna hafa ætlað að deyja saman
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Berglind fengið nóg: Sýnir skuldastöðu sína eftir að hafa borgað af lánunum árum saman

Berglind fengið nóg: Sýnir skuldastöðu sína eftir að hafa borgað af lánunum árum saman
Fréttir
Í gær

Kristján Már beið ósigur í fyrstu orrustunni gegn Reykjavíkurborg

Kristján Már beið ósigur í fyrstu orrustunni gegn Reykjavíkurborg