
Tvær vikur eru síðan Nancy, sem er móðir sjónvarpsstjörnunnar Savannah Guthrie, hvarf af heimili sínu en flest bendir til þess að henni hafi verið rænt.
FBI hefur nú birt ítarlegri lýsingu á manninum sem er talinn tengjast hvarfinu, en umræddur einstaklingur náðist á upptöku á dyrabjöllumyndavél við heimili Nancy.
Að sögn FBI er maðurinn um 175 sentímetrar á hæð, með meðal líkamsbyggingu og með svartan bakpoka af gerðinni „Ozark Trail Hiker Pack“.
Þá var tilkynnt í gær að verðlaunafé hefði verið hækkað og nemur það nú 100 þúsund Bandaríkjadölum fyrir upplýsingar sem leiða annað hvort til þess að Guthrie finnist eða til handtöku hins grunaða.
FBI segir að yfir 13.000 ábendingar hafi borist frá 1. febrúar þegar tilkynnt var um hvarf Nancy. Einn einstaklingur hefur verið handtekinn vegna falskrar lausnargjaldskröfu í tengslum við málið.
Enn sem komið er hefur enginn verið handtekinn í tengslum við hvarfið og þá hafa ekki borist neinar sannanir fyrir því að Nancy sé enn á lífi.