fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Ný rannsókn varpar ljósi á af hverju svefnskortur dregur úr einbeitingunni

Pressan
Laugardaginn 7. febrúar 2026 17:30

Þau sofa vonandi nógu mikið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir hafa eflaust lent í því að eiga erfitt með að halda einbeitingunni daginn eftir lélegan nætursvefn. Fram að þessu hefur skýringin á þessu oft verið að heilinn sé einfaldlega of þreyttur. En niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að aðrir hlutir gerist í heilanum þegar einbeitingin svíkur okkur.

Það voru vísindamenn við Massaschusetts Institute of Technology sem rannsökuðu hvað gerist í heilanum þegar við glímum við svefnskort. Þeir segja að það sé ekki tilviljun að við missum athyglina eða einbeitinguna. Á því augnabliki, sem einbeitingin hverfur, hefst ferli í heilanum sem á sér venjulega bara stað þegar við sofum.

Það er heila- og mænuvökvi sem hér á í hlut en hann hjálpar til við að hreinsa úrgangsefni úr heilanum. Þessi hreingering er mikilvæg fyrir heilann en hún fer yfirleitt fram þegar við sofum.

Í rannsókninni, sem 26 manns tóku þátt í, var fylgst með þátttakendunum bæði þegar þeir voru úthvíldir og eftir svefnlausa nótt. Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Nature Neuroscience.

Þátttakendurnir voru látnir leysa einföld verkefni á meðan vísindamennirnir mældu virkni heilans, púlsinn, andardráttinn og hreyfingu vökva í heilanum.

Þegar þátttakendunum yfirsást skilaboð, sáu vísindamennirnir að vökvinn fór úr heilanum og samtímis hægði á púlsinum og andardrættinum.

Þegar einbeitingunni var náð á nýjan leik, komst líkaminn aftur í eðlilegt ástand.

Vísindamennirnir segja að heilinn bæti upp fyrir svefnskort með því að hreinsa sig og það jafnvel þótt fólk sé vakandi. En gallinn er að þetta ferli fer fram á kostnað einbeitingarinnar. Þetta getur skýrt af hverju fólk missir skyndilega einbeitinguna, meira að segja þegar það reynir að halda sér vakandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér