fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Harmleikur í Ástralíu: Hjón talin hafa myrt einhverfa syni sína og síðan svipt sig lífi

Pressan
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 16:30

Bræðurnir Leon og Otis. Talið er að foreldrar hafi myrt þá og síðan tekið eigin líf.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skelfilegur harmleikur skekur núna Ástralíu eftir að fjölskylda fannst látin á heimili sínu í úthverfi Perth, í vesturhluta Ástralíu.

Hjón um fimmtugt, Jarrod Clune og Maiwenna Goasdoue, synir þeirra, Leon og Otis, 16 og 14 ára, fundust öll látin er lögreglan fór inn á heimilið eftir ábendingar nágranna. Einnig fundust gæludýr fjölskyldunnar dáin inni í húsinu, tveir hundar og köttur.

Ekki liggur fyrir hvort eða hvernig vopni var beitt en samkvæmt fréttum Mirror og fleiri miðla virðist liggja fyrir að um morð og sjálfsmorð hafi verið að ræða. Einnig kemur fram að synirnir tveir voru einhverfir og mállausir. Vinir hjónanna látnu greina frá því að þau hafi átt í miklu stríði við yfirvöld við að sækja sér aðstoð og bætur vegna fötlunar sonanna.

Náinn vinur hjónanna segir að þau hafi upplifað sig einangruð, án stuðnings og yfirgefin af fjölskyldu, vinum, stuðningsstofnunum, skólum og heilbrigðiskerfinu.

Rannsókn lögreglu er á frumstigi.

Ef ein­stak­ling­ar glíma við sjálfs­vígs­hugs­an­ir er bent á Hjálp­arsíma Rauða kross­ins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa sam­band við Píeta-sam­tök­in sem veita ókeyp­is ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér