fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Skæð fuglainflúensa greinist í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 11:53

Mynd/Pexels

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skæð fuglaflensa, H5N1, hefur greinst í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu, en þetta var staðfest í gær þegar niðurstöður sýnatöku lágu fyrir hjá Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum.

Matvælastofnun bárust fyrir skömmu ábendingar um tvo dauða fugla á höfuðborgarsvæðinu. Annar þeirra, rauðhöfðaönd, fannst við Tjörnina í Reykjavík og hinn fuglinn, álft, við Ögurhvarf í Kópavogi.

„Sama afbrigði skæðrar fuglainflúensuveiru H5N1 greindist síðast í júlí 2023 í ritu. Eftir það hefur einungis hitt skæða afbrigði H5N5 fundist. Á þessu stigi málsins er lítið vitað um uppruna smits, en ætla má að það hafi nýlega borist til landsins með farfuglum eða að það hafi borist síðasta haust og verið óuppgötvað þar til nú. Erfðafræðilegar rannsóknir á veirunni munu fara fram og geta varpað ljósi á það hvort hún sé af evrópskum uppruna eða frá Norður-Ameríku. Lítið er vitað um útbreiðslu veirunnar að svo stöddu en engar vísbendingar eru um aukin afföll í villtum fuglum á suðvesturhorni landsins né annars staðar,” segir í tilkynningu Matvælastofnunar.

Þá kemur fram að afbrigðið H5N5 hafi greinst í stökum villtum fuglum víða um land síðasta haust, þó tilfellum hafi farið fækkandi og virðist það hafa fjarað út í nóvember 2025 eða að minnsta kosti ekki fundist eftir það.

Hér á landi eru einnig dæmi um að spendýr, þá refir, minnkar og kettir, hafi veikst af þessu afbrigði veirunnar, en síðustu tilfelli voru staðfest í október 2025, þegar þrír refir greindust með fuglainflúensu af afbrigðinu H5N5.

Viðbúnaðarstig vegna fuglainflúensu hefur verið á óvissustigi síðan í haust og verður áfram í gildi óbreytt að svo stöddu.

Í ljósi þessa hefur Matvælastofnun sent út ábendingu til alifuglabænda, þar sem stofnunin leggur áherslu á hertar sóttvarnir til að koma í veg fyrir smiti í alifuglum frá villtum fuglum. Aðrir fuglaeigendur eru einnig hvattir til þess að tryggja öflugar smitvarnir við umgengni á sínum fuglahópum og vera vel vakandi fyrir sjúkdómseinkennum í fuglum eða óeðlilegum dauða í þeim og tilkynna án tafar slík tilfelli til stofnunarinnar.

Jafnframt hvetur Matvælastofnun almenning áfram til þess að tilkynna stofnuninni um veika og dauða fugla og villt spendýr sem það finnur. Það er gert með því að smella á „Ábendingar og fyrirspurnir“ á forsíðu www.mast.is. Mikilvægt er að lýsa staðsetningu fundarstaðarins vel, helst með hnitum, og láta mynd fylgja með. Almenna reglan er að hræ af villtum fugli er látið liggja. Ef hræ er aftur á móti þannig staðsett að það teljist æskilegt að fjarlægja, til dæmis nálægt hýbýlum fólks, þarf að gæta að einstaklings- og sóttvörnum og nota til verksins einnota hanska, hlífðargleraugu og veiruheldar grímur. Hræinu skal þá komið í tvöfaldan plastpoka og farga í almennt sorp, samkvæmt leiðbeiningum Matvælastofnunar.

Þau afbrigði af fuglainflúensuveirunni sem nú er mest um í Evrópu og víðar valda almennt ekki sýkingum í fólki. Á þetta við um bæði afbrigðin sem greinst hafa hérlendis síðan í haust (H5N5 og H5N1). Einstaka smit hafa komið upp erlendis, en þá hjá einstaklingum sem hafa verið í miklu návígi við sjúka fugla án þess að gæta sóttvarna. Líkurnar á smiti frá fuglum í fólk eru því mjög litlar en þó er aldrei hægt að útiloka smit og fólk þarf ávallt að gæta sóttvarna við handfjötlun á veikum og dauðum fuglum.

Frekari upplýsingar og aðrar leiðbeiningar má finna á upplýsingasíðu Matvælastofnunar um fuglainflúensu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“