fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Fór að sofa á laugardagskvöld en horfin á sunnudagsmorgun – Hvað varð um móður sjónvarpsstjörnunnar?

Pressan
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 10:34

Savannah og Nancy saman. Mynd: NBC/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Yfirvöld í Arizona í Bandaríkjunum rannsaka nú hvarf móður bandarísku sjónvarpsþáttastjörnunnar Savannah Guthrie sem mögulegt mannrán.

Konan, hin 84 ára Nancy Guthrie, hvarf af heimili sínu um helgina en hún sást síðast á laugardagskvöld þegar eitt barna hennar ók henni heim til sín í Catalina Foothills norður af borginni Tucson.

AP greinir frá því að samkvæmt upplýsingum frá sýslumannsembættinu í Pima-sýslu hafi Guthrie verið skilin eftir við heimili sitt um klukkan 21:45 að staðartíma.

Þegar hún mætti ekki til messu morguninn eftir vaknaði grunur um að eitthvað væri að. Vinur hennar hafði samband við aðstandendur hennar sem höfðu samband við lögreglu sama dag.

Chris Nanos, sýslumaður í Pima-sýslu, sagði á blaðamannafundi í gær að rannsókn málsins hefði tekið nýja stefnu.

„Við erum með 84 ára konu sem fór að sofa á laugardagskvöldi og á sunnudagsmorgni er hún horfin,“ sagði hann. „Á þessum tímapunkti telja rannsakendur að hún hafi verið tekin af heimilinu gegn vilja sínum, mögulega um miðja nótt.“

Heimili Guthrie er nú rannsakað sem vettvangur glæps og hefur lögregla safnað líffræðilegum sýnum, þar á meðal DNA-gögnum, sem nú eru í greiningu á rannsóknarstofu. Þá hefur einnig verið farið yfir upptökur úr öryggismyndavélum við húsið og í nágrenni þess, en ekki liggur fyrir hvort eitthvað hafi fundist á þeim.

Nanos sagði á blaðamannafundinum að Guthrie væri skýr andlega og með fullu ráði, en hreyfigeta hennar væri takmörkuð. Að hans sögn hefði hún ekki getað gengið nema stutta vegalengd án aðstoðar, sem styður þá kenningu að hún hafi ekki farið sjálfviljug að heiman.

Dóttirin, Savannah Guthrie, er einn af aðalstjórnendum morgunþáttarins Today á sjónvarpsstöðinni NBC.

Yfirvöld hafa varað við því að líf Nancy gæti verið í hættu þar sem hún er á lyfjum sem hún þarf að taka daglega. Rannsókn málsins stendur enn yfir og hefur almenningur verið hvattur til að veita allar mögulegar upplýsingar sem kunna að varpa ljósi á hvarf hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn

Þetta grænmeti á ekki að fara í ísskápinn
Pressan
Í gær

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Í gær

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást

Sálfræðingur segir að þetta haldi pörum meira saman en ást
Pressan
Í gær

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?

Líkið á ströndinni – Leyndi lögreglan einhverju?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni

Rafvirkjar segja að þessi raftæki eigi að taka úr sambandi á nóttunni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér

Þreytt(ur) að ástæðulausu? – Þetta er heilinn kannski að reyna að segja þér