fbpx
Þriðjudagur 03.febrúar 2026
Fréttir

Handtekinn eftir að hafa hrækt í hár ökumannsins

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 3. febrúar 2026 07:22

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir gista fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eftir nóttina.

Í hverfi 105 var tilkynnt um nakinn einstakling á gangi. Þegar lögregla hafði upp á viðkomandi reyndist hann verulega ölvaður og gaf lögreglu ekki í té persónuupplýsingar. Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa.

Í sama hverfi var tilkynnt um einstakling sofandi í stigagangi, en hann reyndist undir áhrifum og var vísað burt.

Í umdæmi lögreglustöðvar 3, sem sinnir Kópavogi og Breiðholti, var tilkynnt um einstakling sem fór inn í farþegasæti bifreiðar þegar eigandinn sat í ökumannssætinu. Hinn óvelkomni gestur varð svo árásargjarn gagnvart eiganda bifreiðarinnar og hrækti meðal annars í hár hans. Hann reyndist verulega ölvaður og var vistaður í fangageymslu.

Í umdæmi lögreglustöðvar 4 voru fjórir ökumenn stöðvaðir fyrir að tala í farsíma undir stýri. Þeir eiga von á sekt, að sögn lögreglu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt