fbpx
Miðvikudagur 18.mars 2026
Fókus

Laufey hlaut Grammyverðlaun aftur!

Ragna Gestsdóttir
Mánudaginn 2. febrúar 2026 00:00

Laufey tekur við Grammy-verðlaunum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Laufey Lín Jónsdóttir hlaut Grammy verðlaun fyrir bestu hefðbundnu poppplötu ársins, fyrir plötuna A Matter of Time sem kom út í fyrra. Þetta er annað árið í röð sem Laufey hlýtur vinnur, en hún vann til verðlauna í sama flokki í fyrra fyrir plötuna Bewitched.

Grammy-verðlaunahátíðin er haldin í Los Angeles í Bandaríkjunum í dag sunnudag og hefst klukkan eitt eftir miðnætti að íslenskum tíma. Þetta er einn stærsti viðburðurinn í heimi tónlistarbransans og verðlaunaflokkar eru fjölmargir.

„Ég á allt að þakka tónlistarmenntun minni, listmenntun minni … við getum ekki skorið niður fjárveitingar til lista, þær eru svo mikilvægar. Það sem þið öll gerið hér er svo mikilvægt. Ég elska ykkur öll svo mikið,“ sagði hún í þakkarræðu sinni.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by ʕ •ᴥ•ʔ (@laufeyclub)

 

View this post on Instagram

 

A post shared by @laufeytoday

Í sama flokki voru tilnefnd:

“Wintersongs” — Laila Biali

“The Gift of Love” — Jennifer Hudson

“Who Believes in Angels?” — Elton John and Brandi Carlile

“Harlequin” — Lady Gaga

“The Secret of Life: Partners, Volume 2” — Barbra Streisand

Á síðastnefndu plötunni sem er dúettaplata syngja Laufey og Streisand saman lagið Letter to My 13-Year-Old Self.  Lagið kemur úr smiðju Laufeyjar og kom fyrst út árið 2023 á plötu hennar Bewitched.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

FIFA hafnar beiðni Íran
Fókus
Í gær

Lestrarklefinn parar saman bækur og stjörnurnar – „Hver er besta pörunin?“

Lestrarklefinn parar saman bækur og stjörnurnar – „Hver er besta pörunin?“
Fókus
Í gær

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“

Segir stjörnurnar blindar á hversu grannar þær eru: Vara við vannæringu og vöðvarýrnun – „Hvenær er grannt of grannt?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram: „Skvísulætin í botn“

Vikan á Instagram: „Skvísulætin í botn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga

One Battle After Another besta myndin og hlaut flest Óskarsverðlaun – Sinners með fáar styttur þrátt fyrir met í fjölda tilnefninga
Fókus
Fyrir 5 dögum

Jónas Sen fór á tónleika í Hörpu og var ekki hrifinn – „Keisarinn var allsber“

Jónas Sen fór á tónleika í Hörpu og var ekki hrifinn – „Keisarinn var allsber“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Nicole Kidman hefur kysst marga en þessi koss var sá allra versti

Nicole Kidman hefur kysst marga en þessi koss var sá allra versti