fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Pressan

Vann í lottóinu og breytti húsinu sínu í dópverksmiðju – Fékk þungan dóm

Pressan
Föstudaginn 30. janúar 2026 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Áttræður breskur karlmaður sem vann um hálfan milljarð í breska lottóinu árið 2010 hefur verið dæmdur í 16 og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa stýrt einni stærstu framleiðslu með fölsuð lyf sem breska lögreglan hefur nokkru sinni afhjúpað.

Maðurinn, John Eric Spiby, var sakfelldur af dómstól bresku krúnunnar í Bolton í vikunni fyrir framleiðslu og dreifingu á fíkniefnum, vopnalagabrot og fyrir að reyna að hindra framgang réttvísinnar.

Samkvæmt lögreglunni í Greater Manchester var um skipulagða glæpastarfsemi að ræða sem tengdist bæði eiturlyfjum og vopnum.

Saksóknarar sögðu Spiby hafa rekið eiturlyfjanet frá heimili sínu skammt frá Wigan, þar sem framleiddar voru falsaðar töflur af diazepam, betur þekktu undir nafninu Valium.

Fyrir dómi kom fram að Spiby hefði nýtt lottóvinning sinn, sem nam tæpum hálfum milljarði, til að breyta húsnæði sínu og kaupa sérhæfðan búnað til framleiðslu lyfjanna.

Í samskiptum innan hópsins grínaðist hann meðal annars með að auðmenn á borð við Elon Musk og Jeff Bezos „ættu að passa sig“.

Dómarinn í málinu, Nicholas Clark, var ómyrkur í máli og sagði að þrátt fyrir fjárhagslegt sjálfstæði hafi hann kosið að halda glæpastarfsemi sinni áfram langt fram yfir þau ár sem flestir hefðu látið af slíkum afskiptum. Taldi dómarinn að Spiby væri höfuðpaur hópsins.

Alls voru fjórir menn sakfelldir í málinu. Sonur Spiby hlaut níu ára fangelsisdóm og tveir aðrir 12 ára fangelsi annars vegar og 9 ára og 9 mánaða fangelsi hins vegar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri

Þetta er tannlæknum illa við að sjúklingar þeirra geri
Pressan
Fyrir 21 klukkutímum

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi

Svíar ætla að vísa öllum útlendingum sem fá fangelsisdóm úr landi
Pressan
Í gær

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt

Svona sér maður hvort fólk er stjórnsamt
Pressan
Í gær

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu

Þróa „allsherjarbóluefni“ sem veitir vörn gegn ofnæmi, kvefi og flensu