fbpx
Laugardagur 02.maí 2026
Fréttir

Var ekki í jafn góðu formi og lögreglumennirnir sem hann reyndi að stinga af

Ritstjórn DV
Föstudaginn 30. janúar 2026 07:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörg horn að líta í gærkvöldi og í nótt og gista fjórir fangageymslur lögreglu.

Í umdæmi lögreglustöðvar 1, sem sinnir meðal annars miðborginni, var manni veitt eftirför á fæti er hann reyndi að koma sér undan afskiptum lögreglu.

„Hann engan veginn í jafn góðu hlaupaformi og lögreglumennirnir og hafði því ekki erindi sem erfiði. Yfirbugaður og handtekinn grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna, peningaþvætti, að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu og fjölda brota gegn útlendingalögum, t.d. að framvísa ekki lögmætum skilríkjum, upplýsa ekki um tilgang dvalar og að ógna allsherjarreglu og almannahagsmunum íslenska lýðveldisins,“ segir í skeyti lögreglu nú í morgunsárið.

Þá var tilkynnt um mann sem var að valda eignaspjöllum á bifreiðum. Þegar lögreglumenn komu á vettvang reyndi hann að kasta stóru grjóti í lögreglubifreiðina og flúði á fæti. Hann var hins vegar eltur uppi og handtekinn grunaður um eignaspjöll, brot á lögreglusamþykkt og að hlýða ekki fyrirmælum lögreglu. Var maðurinn vistaður í fangaklefa þar til að hann kemst í skýrsluhæft ástand.

Í umdæmi lögreglustöðvar 2 var maður handtekinn eftir að bifreið hans mældist á 134 kílómetra hraða á götu þar sem er 80 kílómetra hámarkshraði. Maðurinn var sviptur ökurétti og þar að auki undir áhrifum fíkniefna. Hann reyndi einnig að blekkja lögreglu með því að framvísa skilríkjum annars manns en hafði ekki erindi sem erfiði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“

Virtur miðill fjallar um sundlaugamenningu Íslands og greinir frá áhyggjum Íslendinga – „Við viljum halda þessu út af fyrir okkur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“

Danska konan skuldar Gunnari um 11 milljónir – „Ég er alveg brjálaður yfir þessu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“

Eiríkur fékk ábendingu um hver sendi nafnlausa bréfið um afa hans – „Aldrei djók eða fyndið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“

Benedikt á inni greiðslur hjá Dönsku konunni – „Því miður klassískt í íslenskri kvikmyndagerð að fólk fresti laununum sínum“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri

Segja fjárhagsstöðu Seltjarnarness enn versna – Handbært fé um áramót dugði fyrir 3 daga rekstri
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli

Fjórir í gæsluvarðhaldi í umfangsmiklu fíkniefnamáli