fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs – Gos og brauðmeti hækkar skarpt

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 29. janúar 2026 10:27

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gosdrykkir og brauðmeti hækkuðu snarpt um áramótin og Bónus og Krónan hækka verð talsvert meira en Prís. Þótt Prís sé langódýrasta matvöruverslunin hækkaði verðlag þar meira árið 2025 en í Bónus og Krónunni. Hækkanirnar koma fyrr fram en í janúar í fyrra. Þetta kemur fram í samanburði Verðlagseftirlits ASÍ á verðþróun matvöru í lágvöruverðsverslunum nú í janúar.

Í tilkynningu sem ASÍ sendi frá sér í morgun kemur fram að borin hafi verið saman verð þann 17. janúar síðastliðinn í Prís, Bónus og Krónunni og mátuð við verð á sömu vörum þann 10. desember síðastliðinn. Í ljós kom að verð á vörum frá Ölgerðinni hafði hækkað um 3-4% að meðaltali í Bónus, Krónunni og Prís. Verð á vörum frá Coca-Cola á Íslandi hafði ekki hækkað í Prís en hækkaði um rúmlega 4% í Krónunni og rúmlega 5% í Bónus. Vörur frá Myllunni hækkuðu í verði um hálft annað prósent í Bónus að meðaltali, um 3% í Krónunni en ekki í Prís. Eru þetta veigamestu hækkanirnar frá byrjun ársins.

EMBED:

Að sögn ASÍ hækkuðu vörur frá Kaffitári um rúmlega 5% í Bónus. „Tekið skal fram að sumar birgjahækkanir koma inn á ólíkum tímapunktum eftir verslunum. Til dæmis höfðu vörur Kaffitár hækkað í verði þann 20. janúar í Krónunni um svipaða upphæð, en það var þremur dögum eftir verðkönnunina. Poki af Morgundögg möluðu kaffi kostar nú 1.349kr í Bónus og 1.350kr í Krónunni, en kostaði í ársbyrjun 1.279kr í Bónus og 1.280kr í Krónunni,“ segir ASÍ.

Bónus og Krónan byrja árshækkunina snemma

Í tilkynningu ASÍ kemur fram að hækkun á matvöruvísitölu Bónus og Krónunnar milli 10. desember og 17. janúar nemi 0,47%, sem gera 4,6% á ársgrundvelli – hærra en árshækkunin í verslununum tveimur, sem nam 3,7% í Krónunni og 4,2% í Bónus. Tekið er fram að hækkun á ársgrundvelli segi hversu mikil hækkunin væri ef hún ætti sér stað alla mánuði ársins.  Í Prís breyttust verð lítið – á ársgrundvelli hækkaði verðlag þar um 0,8%. Undanfarið ár hefur verðlag þar hins vegar hækkað meira, eða um 5,7%.

EMBED:

Munar oftast einni krónu á Bónus og Krónunni

Í tilkynningu ASÍ kemur fram að iðulega sé krónumunur á verði Bónus og Krónunnar, nú sem fyrr. „Í 953 verðsamanburðum af 1.091 var Krónan einni krónu dýrari en Bónus, eða í 87% tilfella. Bónus var að meðaltali 4,7% dýrara en Prís þegar 474 vörur eru skoðaðar sem finna mátti í báðum verslunum. Krónan var 6,0% dýrari en Prís í samanburði á 601 vöru og 0,6% dýrari en Bónus í samanburði á 1.091 vöru.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart

Aðalsteinn hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar – Segir að ástæðan komi sennilega flestum á óvart