fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Hroðaleg meðferð á rússneskum liðhlaupum vekur óhug

Ritstjórn DV
Laugardaginn 31. janúar 2026 07:30

Hroðalegu myndskeiði af rússneskum liðhlaupum hefur verið lekið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hroðalegt myndskeið þar sem sjá má meðferðina á tveimur rússneskum liðhlaupum hefur vakið óhug. Á myndskeiðinu má sjá tvo rússneska hermenn sem hafa verið teipaðir við tré, þar af annar þeirra öfugur. Báðir eru mennirnir berir að ofan um hávetur.

Í myndbandinu má heyra rússneska yfirmenn þeirra hæðast að hugleysi þeirra, ausa yfir þá svívirðingum sem og pynta þá með því að troða til að mynda snjó upp í kokið á þeim þar sem hermennirnir biðjast vægðar.

Hermönnunum er gefið að sök að hafa forðað sér frá fremstu víglínu og hafa óhlýðnast skipunum yfirmanna sinna. Frá byrjun innrásar Rússa í Úkraínu hefur verið fjallað um hið fullkomna skeytingarleysi Rússa fyrir lífum hermanna sinna en þeir hafa iðulega verið sendir út í opinn dauðann á vígvellinum.

Viðræður um stríðslok hafa staðið yfir um skeið en þær hafa gengið erfiðlega enda krefst Vladimir Pútín, Rússlandsforseti, þess að Úkraínumenn gefi eftir víðfemt landsvæði gegn því að Rússar leggi niður vopn. Það hefur Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, þvertekið fyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum

Ferðamenn frá Bandaríkjunum auðveldastir í samskiptum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova

Áframhaldandi sterkur rekstur hjá Nova
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“

Útskýrir „eitraðan kokteil“ hagstjórnarmistaka sem þjóðin er enn að gjalda fyrir – „Þetta ástand fékk að lifa allt of lengi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“

Tara Margrét lætur aftur í sér heyra og rifjar upp stirð samskipti við Ölmu – „Er ekki að reyna að breyta neinu“